Ef meira en tvö hundruð þúsund farþegar á ári fara um flugvöll þá má ekki fjármagna rekstur hans með almannafé samkvæmt drögum að reglum um starfsemi flugvalla á Evrópska efnahagssvæðinu sem framkvæmdaráð Evrópusambandsins hefur sett fram. Þetta kemur fram á vefnum turisti.is
Verði reglum breytt á þennan hátt munu breytingarnar hafa veruleg áhrif á starfsemi Akureyrarflugvallar því rekstur hans kostar 441 milljón á yfirstandandi ári en tekjur af notendagjöldum eru áætlaðar 77 milljónir eða 17,5 prósent af kostnaði. Rekstrarkostnaður Reykjavíkurflugvallar er áætlaður 659 milljónir í ár og notendagjöldin dekka 58 prósent af þeirri upphæð samkvæmt upplýsingum sem vefsíðan turisti.is hefur frá Isavia.
Markmið nýju reglnanna að beina styrkveitingum að markaðsbrestum og um leið að koma í veg fyrir óþarfa styrkveitingar og eyðslu á almannafé. Núverandi drög að ríkisstyrkjareglunum útiloka nánast stuðning við flugvelli með meira en fimm milljónir farþega á ári og takmarka styrki til flugvalla með þrjár til fimm milljónir farþega. Á síðasta ári fóru um tvær og hálf milljón farþega um Keflavíkurflugvöll og í svari Isavia til turisti.is kemur fram að nýju reglurnar muni hafa óveruleg áhrif á Keflavíkurflugvöll þar sem hann er fjármagnaður með notendagjöldum. Hins vegar er ekki búið að greina hver áhrifin verða á rekstur flugvallanna á Akureyri og í Reykjavík.
-SBS








