Hús vikunnar: Helgamagrastræti 6

Hús vikunnar: Helgamagrastræti 6

Helgamagrastræti 6. Myndin er tekin 21.ágúst 2011.

Fúnkís var nokkuð ráðandi byggingarstíll í steinsteypuhúsum hér á landi eftir 1930-35 og framyfir miðja öldina. Helgamagrastræti 6 er mjög gott dæmi um slíkt hús, en það er byggt 1937 eftir teikningum Þóris Baldvinssonar.

Húsið er tvílyft steinsteypuhús, því sem næst ferningslaga að grunnfleti með horngluggum. Gluggar eru yfirleitt breiðari en á hæðina og póstar einfaldir, í þessum húsum voru krosspóstar og sexrúðugluggar fyrri tíðar víðs fjarri. Einhverntíma heyrði ég að á þessum tíma væri fyrst farið að hugsa um stærð glugga og afstöðu herbergja til sólar og dagsbirtu við byggingu húsa. Hitt er annað mál, að notagildi var algjört lykilatriði við byggingu fúnkíshúsa. Hver einasti fermetri nýttur til fulls og ekkert óþarfa prjál. Helgamagrastræti 6 er eitt margra tveggja hæða fúnkíshúsa sem Þórir Baldvinsson teiknaði og voru reist 1936-37 fyrir starfsmenn KEA. Eru þetta á annan tug líkra húsa sem standa við efri hluta götunnar. Öll standa þessi hús enn, en sumum hefur verið breytt og byggt við eins og gengur og gerist.

Þetta var sannkallað úthverfi því á þessum tíma var Helgamagrastrætið efsta gatan í bænum og í bakgarðinum voru tún og beitilönd. Flest voru þessi hús Þóris skipulögð sem tvíbýli í upphafi með íbúð á hvorri hæð en nú eru mörg hver orðin einbýlishús. Íbúasaga Helgamagrastrætis 6 er mér ókunn en fullvíst að þarna hafa margir átt heima gegn um tíðina.

Húsið er í góðu standi enda vel byggt og líkast til vel við haldið frá upphafi og umhverfi hússins er einnig mjög aðlaðandi, líkt og á við um alla götuna þar sem mikil tré og smekklegar grónar lóðir eru áberandi. Raunar er það svo að mörg húsin við Helgamagrastrætið sjást illa að sumarlagi fyrir trjáskrúði.

Helgamagrastræti er önnur tveggja gatna á Akureyri þar sem er heilsteypt röð lítt breyttra fúnkíshúsa frá 1936-40, en hin er Ægisgata á Oddeyrinni og í næstu viku ætla ég að víkja að henni. Í síðarnefndu götunni eru það einlyft hús með valmaþaki sem eru mest áberandi. Hvort þessar götumyndir eru friðaðar veit ég ekki, en það væri eflaust athugunarvert. Þessi mynd er tekin 21.ágúst 2011.

Arnór Bliki Hallmundsson

PS. Helgamagrastræti 6 er byggt 1937 og er því jafn gamalt bandaríska kántrýsöngvaranum Merle Haggard, en hann er fæddur 6.apríl þ.á. Hann er e.t.v. ekki mjög þekktur hérlendis en hér er eitt gamalt og gott frá honum:

Minningarmót Bílaklúbbs Akureyrar og Tengir

Bílaklúbbur Akureyrar og Tengir héldu um helgina Minningarmót í Götuspyrnu á Akstursíþróttasvæði B.A. Mótið var til minningar um þá Pál Steindór Steindórsson og Pétur Róbert Tryggvason sem létust þann ... Lesa »

Konan sem leitað var á Súlum er heil á húfi

Konan sem björgunarsveit leitaði að á Súlum í dag er fundin og heil á húfi. Konan fannst austan í fjallinu, beint niður af Súlutindum nokkuð frá þeirri leið sem hún hugðist fara. Er talið að hún hafi ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Hvernig ertu af geðhvarfasýkinni?

Eftir að pabbi var orðinn veikur af heilabilun fórum við fjölskyldan eitt sinn með honum á kaffihús í Reykjavík enda var sælkerinn seint frá honum tekinn þó minni og tjáning og hreyfigeta væru ekki ... Lesa »

Snjóbrettastökk á þökum við Glerártorg

Snjóbrettamyndin Never Not sem framleidd er af Nike er af mörgum talin vera ein magnaðasta snjóbrettamynd ársins og þó lengra væri talið. Akureyringurinn Halldór Helgason á langt myndskeið í myndinni ... Lesa »

Leitað að konu á Súlum

Björgunarsveitin Súlur er nú á leið til aðstoðar erlendri ferðakonu sem er í vanda á Súlum. Hún hugðist ganga á fjallið eftir stikaðri leið en tapaði áttum og er komin út af henni. Veður er ekki ... Lesa »

Valdmörk barnaverndarnefnda

Sandra Hlíf Ocares héraðsdómslögmaður ræðir um barnaverndarkerfið og hlutverk þess samkvæmt lögum, löggjöfina í kringum það, málsmeðferð í barnaverndarmálum og valdmörk barnaverndarnefnda ... Lesa »

Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs FSA

Aukin veikindi og fjarvistir hjá FSA valda kostnaði

Nærri lætur að eitt af hverjum átta störfum á Sjúkrahúsinu á Akureyri hafi tapast í niðurskurði síðustu ára. Þetta kemur fram í pistli Vignis Sveinssonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs á vef ... Lesa »

Berja ís af raflínum

Hálka og éljagangur er nú á Víkurskarði og á Öxnadalsheiði eru hálkublettir og snjóþekja en Vegagerðin er nú við mokstur á heiðinni. Vegfarendur geta átt von á hálku og krapa jafnvel niður í byggð og ... Lesa »

Björn Valur skoðar málin

Björn Valur Gíslason, fyrrum þingmaður VG, segir að hann útloki ekki að bjóða sig fram til bæjarstjórnar í kosningum á Akureyri næsta vor. Hins vegar telji hann það þó ólíklegra en hitt. Andrea ... Lesa »

Þakplötur losnuðu á Akureyri

Þakplötur losnuðu nú fyrir stuttu á húsi við Gránufélagsgötu þar sem framkvæmdir höfðu staðið yfir. Björgunarmenn úr björgunarsveitinni Súlum voru kallaðir á staðinn eru nú búnir að fergja ... Lesa »

bjorgun

Bílar fastir í Námaskarði

Rétt í þessu var verið að kalla út Björgunarsveitina Stefán í Mývatnssveit til að aðstoða bílstjóra sex bifreiða sem fastar eru í Námaskarði. Björgunarsveitir eru nú að störfum víða um landið, þar ... Lesa »

Ekta tómatsósa

Þegar þú hefur smakkað alvöru heimalagaða tómatsósu þá hættirðu að kaupa hana úti í búð. Hana er einfalt að búa til og í hana mega fara van- eða ofþroskaðir tómatar, linir eða harðir, bleikir eða ... Lesa »

Pálmi sló í gegn

Akureyringurinn Pálmi Gunnarsson sló gjörsamlega í gegn á yfirlitstónleikum sem hann hélt í Eldborgarsal Hörpu sl. helgi. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að halda ... Lesa »

Öruggur sigur Þór/KA á ÍBV í lokaumferðinni

Stúlkurnar í Þór/KA unnu öruggan heimasigur á ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Leikið var á Þórsvelli við prýðisgóðar aðstæður. Sandra María Jessen skoraði tvö marka Þór/KA í ... Lesa »

Síðasti heimaleikur KA-manna var sigur

KA tók á móti Þrótti R. í síðasta heimaleik þeirra gulklæddu í sumar í dag. Leiknum lyktaði með 3-1 sigri KA, sem var mun sterkari aðilinn í leiknum. Með sigrinum skaust KA upp í 6. sætið en þar eru ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að klaufagangur í heilbrigðisráðuneytinu í tíð Ögmundar Jónassonar hafi að nokkru orðið til þess að Þorvaldur Ingvarsson, fyrrum lækningaforstjóri FSA, hafi ekki komið til greina sem ný ... Lesa »

Hjörleifur Hallgríms

Furðuleg afstaða bæjarstjórnar Akureyrar

Að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni er mál upp á líf og dauða ásamt fleiri atriðum. Hver sveitarstjórnin af annarri hefur lýst yfir stuðningi við það mál og hvatt fóllk til að vera með í ... Lesa »

Mikilvægt að kynna foreldrum rétt sinn í barnaverndarmálum

Þegar úrskurðað er um varanlegt fóstur barna sem tekin eru frá foreldrum sínum vegna ýmissa mála leggja starfsmenn barnaverndar viðkomandi sveitarfélags fram tillögu þess efnis til ... Lesa »

Hef gert heiðarlega tilraun til að vera eðlilegur!

Svarfdælingurinn Hugleikur Dagsson kom, sá og sigraði í Hofi um síðustu helgi. Þá hélt hann uppistand sem mæltist að sögn nærstaddra afar vel fyrir. Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita meira um ... Lesa »

Akureyri keppir í Útsvarinu í kvöld

Lið Akureyrar keppir við lið Reykjavíkur í fyrsta þætti spurningaþáttarins Útsvars sem fram fer í kvöld. Fyrir hönd Akureyringa keppa þau Arndís Bergsdóttir, Haraldur Egilsson og Sigurður Erlingsson ... Lesa »

Hríseyingar funda um framtíðarmöguleika

Áhugahópur um framtíð Hríseyjar boðar til málþings laugardaginn 14. september nk. Umræðuefni fundarins verða m.a. atvinnumál, byggðaþróun, þjónusta við íbúa, samgöngur, sumarhús, afþreying, ... Lesa »

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson

Ákvörðun um sviðsforseta frestað

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson, frestaði í gær á fundi Hákólaráðs skipun nýs sviðsforseta hjá hug-og félagsvísindasviði Háskólans. Rektori ber að leggja mat sitt undir ráðið ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Seðlabankinn fyrir slæleg vinnubrögð og fúsk í málsókn sinni gegn Samherja. Svo skrifar karl. Hann segist ekki taka afstöðu til deilunnar sem slíkrar en ótrúlegt sé að sjá fjármunum ... Lesa »

Peningum ekki eytt í hausatalningu í strætó

Akureyrarbær og Reykjavíkurborg nota ólíkar aðferðir til að kanna fjölda farþega í strætó. Í bréfi sem nemendur í HÍ fengu sent nýlega býðst þeim vinna að telja farþega í strætó fyrir sunnan. Þar ... Lesa »

Segir barnafólki mismunað í Grímsey

Mayflor Perez Cajes, móðir ungs barns í Grímsey, telur leikskólaþjónustu óviðunandi í eynni. Grímsey sameinaðist Akureyrarkaupstað árið 2010 og hefur bærinn að sögn Mayflor ekki uppfyllt allar skyldur ... Lesa »

Skoða meira