Stúlkurnar í Þór/KA unnu öruggan heimasigur á ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Leikið var á Þórsvelli við prýðisgóðar aðstæður. Sandra María Jessen skoraði tvö marka Þór/KA í dag.
Thainai Annis skoraði fyrsta mark leiksins á 39. mínútu og leiddu því Þór/KA í hálfleik. Sandra María tvöfaldaði forystu Þór/KA í upphafi síðari hálfleiks, áður en Shaneka Gordon minnkaði muninn fyrir ÍBV. Sandra María var hinsvegar aftur á ferðinni á 74. mínútu og skoraði þriðja og síðasta mark Þór/KA.
Með þessum sigri skutust Þór/KA upp fyrir Breiðablik í 4. sætinu en Breiðablik leikur síðasta leik sinn á morgun gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Fyrst að ÍBV tapaði leiknum misstu þær af silfurverðlaununum í deildinni og enda í 3. sæti.
Myndir: Sævar Sigurjónsson
-SMS
siguroli@akv.is







