„Það er bara ekki hægt annað en að nýta þetta dásamlega veður til hins ýtrasta,“ segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir sem stendur fyrir gong-slökun í sundlauginni á Þelamörk, sem áður hafði verið kynnt að yrði á fimmtudagskvöld en hefur nú verið flýtt og verður haldin annað kvöld, miðvikudagskvöld.
„Ég verð bara með svona viðburð einu sinni í sumar hér fyrir norðan og mér finnst bara ekki hægt annað en að nota þessa bongóblíðu, svo nú bara hlýðum við náttúrunni,“ segir Arnbjörg og hlær.
Slökunin hefst kl. 22 en nánar má lesa um viðburðinn hér.




