Ég held að ég tali fyrir alla íbúa hérna í Borgarhlíðinni þegar ég segi að við séum búin að fá nóg af því hvað áhorfendur Þórsvallarins hafa litla tillitsemi og leggja í einkastæðin okkar eða þá í götunni og valda slysahættu í henni. Hefur verið talað við framkvæmdastjóra Þórs og hefur hann verið skilningsríkur, en nær sá skilningur ekki til þeirra sem koma á leiki. Þórsarar hafa sent til okkar á bílastæðið vörð sem er rétt áður en leikurinn byrjar og svo er hann farinn þegar flautað er til leiks. Núna á sunnudaginn (14.07.13) var leikur og eins og myndirnar sýna þá er ekki mikil virðing borin fyrir einkabílastæðum við blokkina sem ég bý í og ekki heldur götuna yfir höfuð. Og er þetta ekki bara slæmt hjá okkur.
Drangshlíð er oftar en ekki full af bílum og túnið við Gleránna. Höfum við oft lent í því að þegar við bendum fólki að leggja á öðrum stöðum þá er rifið kjaft við okkur og verið bara mjög dónalegt, sérstaklega þegar pollamótið er þá kemur fólk alls staðar af landinu og skiptir víst ekki máli að við séum komin með skilti um að þetta sé einkabílastæði, svo virðist sem við eigendur að bílstæðinu höfum lítinn sem engan rétt til að vernda okkar bílastæði nema þá að borga fyrir að láta draga þá bíla sem ekki tilheyra okkur. Það vantar víst í löggjöfina að eigendur einkabílastæða meigi láta draga bíla á kostnað bílaeigendana.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig var hægt að gefa leyfi fyrir því að byggja þessa stúku og hafa ekki næg bílastæði nálægt innganginum. Notað er stórt svæði undir æfingarvöll sem hefði verið gott bílastæði fyrir Þórsvöllinn. Síðan stúkan var vígð hefur komið fyrir að íbúar þurfa að leggja hjá Sunnuhlíð, jafnvel ekki einu sinni fengið stæði þar og þuft frá að hverfa.
Oft hefur verið lagt báðu megin í götunni svo ekki er hægt að mæta bíl í götunni. Hefur þetta verið vandamál frá upphafi Þórsvallarins og hefur þetta bara versnað eftir að inngangurinn var færður.
Veit ég vel að þetta er ekki bara vandamál hérna hjá okkur, eins er vandamál við KA heimilið og eins við Akureyrarvöll.
Barbara Hjartardóttir


