Vegagerðin hefur nú rutt veginn yfir Lágheiði, en það er gamla leiðin milli Ketiláss og Ólafsfjarðar, eða Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, en vegurinn er ómalbikaður að mestu leyti.
Leiðin er skemmtileg og fallegt að keyra hana í góðu veðri en í vor og sumar hefur borið við að ferðamenn festi bíla sína á heiðinni en umdeilt hefur verið hvort merkingar um að vegurinn væri lokaður væru nógu skýrar. Ekki var á áætlun Vegagerðarinnar að opna veginn en vegna þess hversu margir höfðu lent í vandræðum var sú ákvörðun tekin að ryðja leiðina.


