Eins og undanfarin ár munu Akureyringar taka á móti gestum á fjölskylduhátíðinni Ein með öllu um erslunarmannahelgina. Hátíðin er farin að festa sig í sessi á meðal bæjarbúa og gesta þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá frá fimmtudegi til sunnudags.
Dagskráin hefst í Skátagilinu á fimmtudagskvöldi með Fimmtudagsfílingi N4. Þar koma m.a. fram: Ingó veðurguð, Eyþór Ingi, Hvanndals- bræður og ýmsir fleiri. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu á N4.
„Hátíðin hefur verið að mælast virkilega vel fyrir síðustu ár og þess vegna höldum við bara sömu formúlunni þetta árið. Hingað kemur fólk á öllum aldri, fyrst og fremst fjölskyldufólk enda er dagskráin miðuð við það,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson viðburðarstjóri Einnar með öllu og bætir við: „Við teljum okkur vera í nokkurri sérstöðu með þessa hátíð þar sem þetta er ein stærsta bæjarhátíð landsins og það kostar ekkert inn en samt glæsileg dagskrá í boði alla helgina.“
Sælgætisregn í miðbænum
Á föstudeginum hefst hátíðin formlega í göngugötunni með sælgætisregni en síðan hefst dagskráin á sviði í miðbæ Akureyrar á daginn og kvöldin. Þar koma m.a. fram: Kaleo, Einar Mikael töframaður, The Bangoura band, Dúndurfréttir, Sísí ey, Úlfur úlfur, Svenni Þór, Róbert og Ragga, Gleðiganga Hinsegin daga, Trúðurinn Wally, Júlía Árna ásamt Einari Höllu, Jokka, hópdans, Páll Óskar og ýmsir fleiri.
Á sunnudagskvöldinu eru svo hinir árlegu Sparitónleikar þar sem yfir 15.000 manns hafa komið saman og skemmt sér þar sem dagskránni lýkur með glæsilegri flugeldasýningu. Á Sparitónleikum í ár koma m.a. fram: Hvanndalsbræður, Aron Birkir, sigurvegari í Söngkeppni unga fólksins, Hljómsveitin Goðsögn, Sigga Beinteins og hljómsveitin Stuðkompaníið sem kemur saman eftir margra ára fjarveru. Kynnir verður stórtenórinn Óskar Pétursson.
Fyrir þá sem vilja er fjölbreytt tónleikadagskrá og næturlíf í boði á skemmtistöðum bæjarins. Þar má nefna: Ingó veðurguð, Hvanndalsbræður, Mannakorn, Úlfur úlfur, Sísí ey, 80′s & 90′s Dynheimaböll, Páll Óskar, Dúndurfréttir og ýmsa fleiri.
Mömmur, möffins og kirkjutröppuhlaup
„Við höfum líka lagt upp með fjölbreytta afþreyingu víðar um bæinn eins og til dæmis Kirkjutröppuhlaup, skautadiskó, litbolta, tívolí, óskalagatónleika, vatnabolta, Íslandsmeistaramótið í sandspyrnu, söngkeppni unga fólksins, Ein með öllu og rauðkáli í Iðnaðarsafninu, Söngvaborg, Leikhópurinn Lotta, Mömmur og möffins, ævintýraland og fleira. Það er enginn svikinn af því að heimsækja okkur um versló enda erum við Akureyringar frægir fyrir fleira en bernesssósuna, því hér er alltaf gott veður og við viljum sjá sem flesta á Einni með öllu um verslunarmannahelgina,“ segir Davíð að lokum.
Nánari upplýsingar eru á vef hátíðarinnar einmedollu.is


