Hvar er samviskan?

Hvar er samviskan?

Hafdís Helgadóttir

Nú er ég nýlega flutt hingað norður, u.þ.b. hálft ár síðan. Ég tel mig vera góðan ökumann, ber virðingu fyrir öðrum í umferðinni, legg bíl mínum rétt í stæði, þ.e. gæti þess að vera innan þeirra marka sem sett eru ökutækjum og fer eftir lögum og reglum.

Mér blöskrar þó hversu mikið virðingarleysi virðist vera í gangi hér. Á innan við tveim mánuðum er í tvígang búið að tjóna bílinn minn, í annað skiptið sá töluvert á bílnum og af og frá að ökumaðurinn hafi ekki orðið var við áreksturinn. Í bæði skiptin var keyrt burt, samviskulaust og ég sit uppi með tjónaðan bíl sem sífellt fellur meira í verði fyrir vikið.

Við hjónin urðum einnig vitni að svona atburði. Kona bakkaði bíl sínum út úr stæði við Glerártorg og var ekkert að flýta sér. Hún bakkaði á bíl, svoleiðis að hún hefur án nokkurs vafa fundið fyrir því, horfði í kring um sig og sá okkur horfa á sig, ók svo í sömu rólegheitunum af vettvangi, án þess svo mikið sem að horfa um öxl. Við tókum að sjálfsögðu niður númer bílsins og tilkynntum til lögreglu.

Hvar er samviska fólks í dag? Er engin virðing eftir fyrir náunganum? Það er alveg ólýsanlega súrt að koma að bíl sínum, tjónuðum, engin vitni og enginn gengst við verknaðinum.

Við getum öll lent í því að tjóna annan bíl. En sýnum ábyrgð og látum vita, hvort sem við erum vitni eða gerendur. Það er það sem við viljum að væri gert ef við yrðum fyrir tjóninu, ekki satt?

Hafdís Helgadóttir

Facebook notuð fyrir svindl?

Dyraverðir í miðbæ Akureyrar segjast árlega gera upptæk hundruð skilríkja eftir að börn reyna að svindla sér inn á skemmtistaði. Vísbending er um að aðeins brot þessara mála endi með formlegum hætti ... Lesa »

Björn Þorláksson

Frussandi ofstæki samtímans

Það er ekki heiglum hent að lifa, þrífast og dafna í þessu ágæta samfélagi okkar Íslendinga þessa dagana. Annað hvort er fólk frábært eða ömurlegt. Annað hvort er allt sem það segir gull eða bara ... Lesa »

Tvö ný í Útsvarsliði Akureyringa

Tveir nýir liðsmenn skipa Útsvarslið Akureyringa í vetur í hinni vinsælu spurningakeppni Sjónvarpsins. Þau eru Haraldur Þór Egilsson forstöðumaður Minjasafnsins á Akureyri og Arndís Bergsdóttir ... Lesa »

Safnakvöld í Þingeyjarsýslum

Föstudagskvöldið 23. ágúst verður í fyrsta sinn haldið Safnakvöld í Þingeyjarsýslum. Þá munu 14 söfn og sýningar hafa opið frá sjö til tíu um kvöldið og bjóða upp á ýmsa viðburði. Á Snartarstöðum ... Lesa »

Umhverfisráðherra vill nýtt umhverfismat fyrir Bjarnarflagsvirkjun

Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra hvetur Landsvirkjun til að vinna nýtt umhverfismat fyrir Bjarnarflagsvirkjun við Mývatn þar sem forsendur hafi breyst frá því að núverandi mat, sem gert var ... Lesa »

Akureyri fegursti bær á Íslandi

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason átti leið um Akureyri í gær og varð snortinn af fegurð bæjarins. „Eins og Akureyri birtist mér í gærkvöldi er hún fegursti bær á Íslandi,“ skrifar Egill á bloggi sínu ... Lesa »

Ráðhúsið á Akureyri. Mynd: akureyri.is

Akureyrarbær hættur að senda út greiðsluseðla

Akureyrarbær hefur hætt að senda út greiðsluseðla vegna leikskólagjalda, skólafæðis og frístundar. Innheimtukröfur munu nú eingöngu birtast í heimabönkum en hægt er að skoða alla reikninga á ... Lesa »

Svekkjandi tap KA gegn Haukum

KA og Haukar áttust við á Akureyrarvelli í kvöld í flottu fótboltaveðri, þrátt fyrir að áhorfendum hafi sennilega verið kalt. Hæg norðanátt og völlurinn í fínu standi, hið besta veður til ... Lesa »

Retro Stefson Karnival á Akureyrarvöku

Akureyrarvaka verður haldin um þarnæstu helgi. Hápunktur hátíðarinnar verður laugardaginn 31. ágúst þegar efnt verður til litríkrar listaveislu með alþjóðlegum blæ á Ráðhústorgi, í Listagilinu og ... Lesa »

Hús vikunnar: Hafnarstræti 98

Af Eyrinni færum við okkur upp í Miðbæ, nánar tiltekið að Hafnarstræti 98 einnig þekkt sem Hótel Akureyri en fyrir nokkrum árum var þetta hús bæði yfirgefið og niðurnítt en það hefur gengið í ... Lesa »

Dagmar Ýr Stefánsdóttir ráðin upplýsingafulltrúi Fjarðaáls

Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls og kemur hún til starfa í samfélagsteymi Fjarðaáls í október. Erna Indriðadóttir, sem hefur gegnt starfi upplýsingafulltrúa ... Lesa »

Gott sveppahaust

Caroline Kerstin Mende hefur búið í Skagafirðinum í þrjú ár en fluttist þangað frá Þýskalandi. Hún gerir mikið af því að tína sveppi og segir óvenju mikið sé af sveppum þetta haustið. „Það er svo ... Lesa »

Ráðherra beiti sér gegn ólöglegri starfsemi í ferðaþjónustu

Markaðsstofa Norðurlands hefur skorað á Ragnheiði Elínu Árnadóttur, ráðherra ferðamála, að beita sér þegar í stað og af hörku gegn ólöglegri atvinnustarfsemi innan ferðaþjónustu. Segir ... Lesa »

KA mætir Haukum í dag

KA og Haukar frá Hafnarfirði mætast í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Leikið er á Akureyrarvelli og hefst leikurinn klukkan 19.00. KA-menn hafa ekki náð að sækja mörg stig í undanförnum leikjum ... Lesa »

Grátt í fjöll og hvassviðri á Norðurlandi

Það var kuldalegt um að litast á Norðurlandi í morgun enda hafði gengið á með hvassviðri í nótt og snjóað í fjöll. Lögreglan á Akureyri hafði í nógu að snúast við að elta trampólín og ruslatunnur sem ... Lesa »

Þór og Fylkir skildu jöfn á Þórsvelli

Þórsarar fengu Árbæinga í heimsókn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og skoruðu bæði lið tvö mörk í leiknum. Skiptust því stigin jafnt á milli liðanna, eitt stig hvort lið. Ágætlega var ... Lesa »

Mikil hækkun á síma- og internetþjónustu

Verðlagseftirlit ASÍ tók saman verðþróun á síma- og internetþjónustu sl. tvö ár úr tölum frá Hagstofu Íslands. Þar má sjá að farsímaþjónusta hefur hækkað samfellt frá því í lok árs 2011 og er nú um ... Lesa »

Fylkir heimsækir Þórsvöllinn

Stórleikur er í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á Akureyri í dag þegar að Þór fær Fylki í heimsókn. Leikurinn hefst klukkan 18.00. Aðeins tveimur stigum munar á liðunum í deildinni, Þór hefur 14 ... Lesa »

Yfir 18.000 hafa skrifað undir áskorun um flugvöll í Vatnsmýri

Á föstudagsmorgun setti félagið Hjartað í Vatnsmýrinni af stað undirkriftasöfnun til stuðnings Reykjavíkurvelli á vefnum www.lending.is. Þar er skorað á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja öllum ... Lesa »

Áhugahópur um framtíð Hríseyjar

Fimmtudaginn 15. ágúst kom saman tíu manna hópur í Hrísey sem kallar sig áhugahóp um framtíð Hríseyjar. Hópurinn hefur ákveðið að halda íbúafund í september í samstarfi við fyrirtæki og félagasamtök í ... Lesa »

Ísland Norðurlandameistarar í Ólympískum lyftingum

Norðurlandamótið í Ólympískum lyftingum fór fram á Akureyri um helgina. Margt var um dýrðir og féllu t.a.m. nokkur Íslandsmet. Akureyringurinn, Darri Már Magnússon, sigraði í -56 kg flokki þar sem ... Lesa »

Jafntefli hjá bæði KA og Þór/KA

Bæði karlalið KA og kvennalið Þór/KA voru í eldlínunni í knattspyrnu um helgina. KA sótti Víkinga heim í 1.deildinni og Þór/KA fór á Vodafone-völlinn að Hlíðarenda og spilaði við Val. KA, sem hefur ... Lesa »

Málsvarar unglinga

„Barningur er fullur samúðar í garð unglinga, tilveran getur verið svo erfið á þessu tímaskeiði. Þess vegna langar okkur að tala um klámvætt kynlíf; nýtt og ófrýnilegt andlit ójafnréttis. Á ... Lesa »

Grímseyjarferð í bongóblíðu

Á dögunum tókst ljósmyndari blaðsins á við Grímsey í fjóra daga. Á vegi hans varð fólk, dýr og besta veður sumarsins að sögn innfæddra. Eftir fjóra daga í þessari paradís er maður margs vísari um ... Lesa »

Tónlistardívur ferðast og fræða

Tónlistarkonurnar Hafdís Huld, Védís Hervör, Ragga Gröndal og Lára Rúnars leggja land undir fót í ágúst og spila fyrir landsmenn. Ferðin er ekki síður liður í því að kynna KÍTÓN, félag kvenna í ... Lesa »

Skoða meira