Í yfirliti sem Akureyrarbær hefur unnið um samanburð stærstu sveitarfélaga á launum ungmenna í vinnuskólanum vegna fréttar blaðsins í síðustu viku kemur í ljós að Fjarðabyggð greiðir langhæsta kaupið á unna vinnustund fyrir ungmenni en Hafnarfjörður rekur lestina. Akureyri virðist nálægt miðju.
Þar kemur fram að mikill munur er á framboði vinnustunda fyrir ungmenni. Einnig er misjafnt milli sveitarfélaga hversu mikil fræðsla og skemmtun er í boði í vinnuskólanum og dæmi þess að einungis sé um vinnu að ræða.


