„Ég er ekki að hætta, a.m.k. ekki alveg á næstunni. Við vorum nokkur sem lentum í því að starfshlutfallið var lækkað,“ segir Pétur Halldórsson, útvarpsmaðurinn góðkunni sem sinnt hefur um langt árabil ýmsum störfum fyrir rúv á Akureyri, einkum fyrir Rás 1.
Starfshlutfall Péturs var nýverið lækkað úr 100% niður í 70%. Ástæðan er sögð sparnaður. Hann er sá eini á Norðurlandi í þessari atrennu sem lendir undir niðurskurðarhnífnum. „Þessar aðgerðir ollu talsverðum titringi á Rás 1 og óöryggi. Enginn veit hvort eitthvað meira er í bígerð,“ segir Pétur Halldórsson.
Pétur hefur gagnrýnt stjórnun rúv opinberlega og þá ekki síst skerta þjónustu úti á landi. Óðinn Jónsson, fréttastjóri rúv, segir að Pétur heyri undir dagskrárdeild útvarps og þess vegna væri það ekki hans að svara spurningu blaðsins hvort ákvörðun um lækkað starfshlutfall Péturs tengdist gagnrýni Péturs á t.d. niðurlagningu svæðisútvarpsins á sínum tíma.
Spurður hvort til standi að endurvekja svæðisútvarpið, segist Óðinn ekki útiloka neitt í þeim efnum. Það verður þó að teljast ólíklegt því rúv hefur stórfækkað starfsmönnum úti á landi þótt landsbyggðarfólk borgi sama nefskatt og aðrir. Blaðið spurði Óðin um fækkun starfa á landsbyggðunum og eru nú 12 í fullu starfi utan höfuðborgarsvæðisins hjá rúv, þar af tveir verktakar á Ísafirði og í Vestmannaeyjum og að auki nokkrir í hlutastörfum sem verktakar. Óðinn segist telja 18-21 starfsmaður hafi verið að störfum hjá rúv á landsbyggðunum fyrir hrun. Það jafngildir því ef miðað er við hærri töluna að orðið hafi um 43% niðurskurður á föstum starfsmönnum rúv úti á landi frá hruni.


