Last fá þeir ferðamenn sem bæinn sækja en kunna ekki að leggja bílum samkvæmt umferðarreglum. Skrifar kona, búsett í Helgamagrastræti á Akureyri. „Það er mikið gaman að fá fullt af fólki í heimsókn í bæinn á veturna til að taka þátt í vetraríþróttum. EN of margir sem hingað koma á sínum „útblásnu hormónajeppum“ virðast ekki gera sér grein fyrir þeim reglum er gilda um „parkeringu” bíla. Má þar sérstaklega benda á „lagningu” bíla sunnarlega í Helgamagrastræti og efst í Hamarstíg neðan Þórunnarstrætis. Lögreglu hefur verið bent á þetta vandamál, en er undirmönnuð til að sinna slíkum smá verkefnum,“ skrifar konan…
Last fær Akureyrarbær fyrir að gæta þess ekki að setja sand eða aðra hálkuvörn við hverfisgámana hér í bænum, að sögn íbúa íbænum. „Bærinn sem segist vera með öll lífsins gæði stendur ekki undir nafni þegar kemur að þessum málum, enda rann ég í hálku á mánudaginn við eina hverfisstöðina og braut á mér hendina. Alger glerungur var á svæðinu og greinilegt að ekkert hafði verið sandað þar. Spurning hvort ég geti farið í mál við bæinn.“…
Lof fá allir sem veita góða þjónustu í miðbæ Akureyrar og þá ekki síst Hafdís i GS. Þetta segir kona sem hafði samband við blaðið og segist hún vona að góð þjónusta hjá fólki í miðbænum verði vonandi eitt af því sem bjargi miðbænum frá því að „sofna“…
Lof fær Norðurorka fyrir að styðja myndarlega við lista- og menningarlíf á Akureyri.
Last fær Norðurorka fyrir að koma í veg fyrir hundasleðakeppni sem átti að fara fram á gönguskíðabraut í Hlíðarfjalli, segir hagsmunaaðili. Hann segir rökin þau að hluti gönguskíðabrautar nái inn á vatnsverndunarsvæði Akureyringa, svokallað grannsvæði. Gönguskíðafólk og „önnur dýr“ hafi gengið þarna sjálfala á þessu svæði í mörg ár og girðing sem verndar vatnsból Akureyringa legið niðri meira og minna síðastliðin ár. „Sá tími sem áætlaður var fyrir ofangreinda keppni eru fjórar klukkustundir, ekki oftar en einu sinni á ári,“ segir hagsmunaaðilinn…























