Ég og Mottumars 2013

Ég og Mottumars 2013

Baldur Ragnarsson

– opið bréf til Íslendinga frá Baldri Ragnarssyni þann 22. febrúar 2013

Góðan dag!
Ég heiti Baldur Ragnarsson og ég ætla að taka þátt í Mottumars 2013. Ef til vill muna einhverjir eftir þátttöku minni í Mottumars 2012 en þá tók ég þátt í fyrsta skipti. Nálgun mín í fyrra var ljósmyndaþema þar sem ég birti með reglulegu millibili hæfilega alvörugefnar myndir eftir því sem áheitin hækkuðu (myndirnar er hægt að sjá hér:http://on.fb.me/139lXvd). Uppátækið náði athygli þónokkuð margra og vakti vonandi kátínu flestra. Það sem mestu máli skiptir þó er að með þessu uppátæki náði ég að safna saman talsverðu fé til þessa verðuga málefnis. Nú langar mig að ganga enn lengra og eftir skipulagningu, umhugsun, nokkuð mörg símtöl og ákaflega jákvætt viðmót allra sem ég hafði samband við er eftirfarandi niðurstaðan:

Myndauppboð. Næstum því ljósmyndauppboð, en þó ekki alveg.

Ég hef ákveðið að bjóða upp eina mynd í viku á Fésbókarsetri mínu, www.facebook.com/baldurragn og hef fengið til liðs við mig ljósmyndara og listamenn sem sumir tengjast mér á einhvern hátt á meðan aðrir gera það minna. Allir eiga þessir heiðursmenn það þó sameiginlegt að hafa tekið gríðarlega vel í bón mína um að vera með. Þannig spannar uppboðið í heild sinni 5 vikur, fyrsta mynd verður kynnt á mánudaginn kemur, 25. febrúar, og slegin hæstbjóðanda viku síðar, þann 4. mars. Þá verður mynd númer tvö afhjúpuð og svona gengur þetta koll af koll þar til síðasta myndin hverfur til nýs eiganda síns þann 1. apríl.

*

Þessir eiga myndir á uppboðinu:

INGÓLFUR JÚLÍUSSON (250213–040313)
Ingólfur er góðvinur minn og félaga minna í Skálmöld. Ingó hefur komið að því að taka kynningarmyndir fyrir sveitina, verið okkur innan handar með víkingabúnað, vopn og verjur, enda annálaður áhugamaður um víkinga og einhvernveginn verið samtíða sveitinni frá upphafi. Að auki tengist Ingólfur málefninu frá fleiri hliðum því hann háir nú sitt eigið stríð við krabbameinið.

LÁRUS SIGURÐARSON OG HALLMAR FREYR ÞORVALDSSON (040313–110313)
Aftur Skálmaldartenging. Hallmar er frá Húsavík líkt og ég sjálfur og einn af betri vinum Snæbjörns bróður míns. Habbi er myndvinnsluundrabarn og kom að allri ímyndarvinnu og myndvinnslu Skálmaldar í upphafi og á því stóran þátt í ímynd bandsins. Lalli var kannski ekki með alveg frá upphafi en hefur með tíð og tíma orðið hirðljósmyndari Skálmaldar og tekur meira og minna allar kynningarljósmyndir fyrir okkur í dag. Saman hafa þeir svo unnið ótrúlegar myndir, bæði fyrir okkur og aðra og gerðu eina mynd fyrir mig í fyrra (http://on.fb.me/VF8Nsq).

JÓNATAN GRÉTARSSON (110313–180313)
Jónatan kom líka að Mottumars í fyrra. Við þekkjumst ekki mikið en eigum talsvert marga sameiginlega vini og að hans frumkvæði tók hann mynd af mér fyrir Mottumars í fyrra (http://on.fb.me/UDtvHg). Það kunni ég gríðarlega vel að meta og þar af leiðandi fannst mér sjálfgefið að tala við hann núna.

HUGLEIKUR DAGSSON (180313–250313)
Hugleik þekki ég ekkert en mér finnst hann næstum því alltaf alveg brjálæðislega fyndinn. Fyrst og fremst hafði ég samt samband við hann vegna þess að mig langaði til þess að útvíkka þetta myndakonsept svolítið, ekki bara einskorða mig við ljósmyndir. Þess má geta að ég veit ekkert hvernig hann ætlar að leysa þetta mál.

RAGNAR AXELSSON „RAX“ (250313–010413)
RAX hafði fylgst með Mottumars í fyrra og fannst uppátækið mitt skemmtilegt. Stórvinur minn og ljósmyndari, Heiddi Gutta, hafði unnið með honum á Mogganum og talaði svona líka vel um hann. Ég hafði lengi dáðst að verkunum hans og því óhætt að segja að ég hafi orðið kátur þegar hann tók svona líka vel í það að vera með.

Allar verða myndirnar prentaðar í stærðinni 40 x 60 cm, ýmist á ál eða striga, eitt stykki af hverri. Myndirnar verða allar af mér og ég verð vitanlega með mottu á þeim öllum.

*

Listamennirnir gefa allir vinnu sína, líkt og aðrir sem koma að þessu. Og það eru þónokkuð margir. Um uppboðs-appið og alla umsýslu á Facebook, sjá snillingarnir hjá PIPAR\TBWA annarsvegar og Smartmedia hins vegar. Þetta er talsvert umstang og gersamlega ómetanlegt. Pixlar gefa prentunina eins og hún leggur sig sem er ekki síður höfðinglegt. Ýmsir hafa lagt til fatnað og annað fyrir myndatökur, Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, Brúðarkjólaleiga Katrínar, fleiri fyrirtæki, sem og vinir og vandamenn. Verndari mottunnar er síðan Stjúri rakari en hann hefur nú þegar tekið nokkra snúninga á mottunni niðri í rakarahorninu sínu hjá Kormáki og Skildi.

Rétt er að árétta að ég hyggst ekki láta ágóðann af uppboðinu renna saman við áheitin í sjálfum Mottumars. Þar kem ég til með að taka þátt líkt og í fyrra en læt þó uppboðið standa fyrir utan þá söfnun. Því á örugglega eftir að fylgja glens og grín og ýmislegt skemmtilegt.

Og þannig er nú það. Fyrirtæki og fjársterkir aðilar koma vonandi til með að finna sig í því að styrkja málefnið með þessum hætti (og eignast þannig ómetanlegar myndir af mér) en fyrst og fremst er það ósk mín að þetta verði skemmtilegt. En við þurfum samt pening því krabbamein er hálfviti.

Góðir Íslendingar, þetta verður gaman!
Baldur Ragnarsson

Vinalegt gamalt fólk á Öldrunarheimilum Akureyrar. Mynd af vef Akureyrarbæjar

Hræðast karlar gamalt fólk?

Á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) starfa einungis níu karlar við umönnun í tæplega sex stöðugildum og eru konur því um 97% starfsmannahópsins. Í von um að hægt verði að leiðrétta ... Lesa »

Frá kynningarfundi Evrópustofu á Hótel KEA í febrúar

Reynsla Svía af landbúnaðarstefnu ESB

Karl Erik Olsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra Svíþjóðar fjallar um reynslu Svía af landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og þátttöku í Evrópuþinginu á opnum fundi á Hótel KEA, ... Lesa »

Arna Valsdóttir. Mynd af vef VMA

Ekki athyglisbrestur heldur víðhygli

Fyrir um áratug setti Arna Valsdóttir, kennari og brautarstjóri listnámsbrautar VMA, fram hugtakið „víðhygli“ sem hún taldi og telur enn að eigi mun betur við um fjölmarga þá ... Lesa »

Mynd: Daníel Starrason

Færi getur verið erfitt innanbæjar

Starfsmenn Akureyrarbæjar vinna nú við að hreinsa götur í bænum. Víða hefur skafið í skafla og getur því verið erfitt fyrir minni bíla að komast leiðar sinnar en annarsstaðar er vel ... Lesa »

5. þreps liðin á Bikarmóti í áhaldafimleikum. Mynd af vef FIMAK

Gott gengi FIMAK um helgina

Um helgina fór fram Íslandsmót unglinga í hópfimleikum. Mótið var haldið hjá Stjörnunni í Garðabæ og sendi Fimleikafélag Akureyrar fjögur lið til keppni. Tvö liðanna kepptu í 2. ... Lesa »

Þessa mynd tók Margrét Elfa Jónsdóttir af hjólum á Akureyri í dag. Aðeins hörðustu naglar ferðast um á slíkum fákum í svona veðri

Aðstoðuðu hjólreiðamann í Langadal í morgun

Lögreglan á Blönduósi kom þýskum hjólreiðamann til aðstoðar í Langadal í morgun en skólabílstjóri hafði komið auga á manninn á ferð sinni um dalinn og tilkynnt til lögreglu. Sagt ... Lesa »

Sauðkrækingar segjast ekki vera kræklingar. Mynd: Helga Kvam, allskonar.is

Króksarar ekki sáttir við að vera kallaðir kræklingar

Sauðkrækingar eru ekki ánægðir með að í dreifibréfi sem í morgun kom inn um bréfalúgur frá Símanum er ávarpið: Kæri Sauðkræklingur. Hafa margir kvartað yfir þessu í dag og vilja ... Lesa »

eyrarrosin

Eyrarrósin verður afhent í Hofi

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í níunda sinn þriðjudaginn 12. mars næstkomandi. Í ár verður ... Lesa »

Í éljagangi og skafrenningi síðdegis 4. mars 2013. Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð

Munið að hreinsa snjó af bílljósunum

„Nú er stórhríð í umdæminu og skyggni lítið. Ekkert ferðaveður er á vegum og færð víða farin að spillast í þéttbýli, sérstaklega í úthverfum. Til þeirra sem þó eru og ... Lesa »

Sundlaugin á Akureyri

Dýrt í sund á Akureyri

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2012. til 1. janúar 2013. Tólf sveitarfélög hafa hækkað ... Lesa »

snjorvegur

Færð tekin að spillast innanbæjar á Akureyri

Færð er nú tekin að spillast innanbæjar á Akureyri og ekki lítur út fyrir að neitt lát verði á úrkomuni í dag. Starfsmenn Akureyrarbæjar vinna nú við að moka helstu leiðir. Á ... Lesa »

Við afhendingu verðlaunanna. Mynd: Hörður Kristjánsson bbl.is

Handverkskonur milli heiða verðlaunaðar

Landbúnaðarverðlaunin 2013 voru veitt nú við setningu búnaðarþings í gær, sunnudaginn 4. mars. Verðlaunin hlutu bændur í Laxárdal II og handverkshópurinn Handverkskonur milli heiða en ... Lesa »

Harvey Siegel

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg?

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg? Þetta eru spurningar sem Harvey Siegel prófessor við Háskólann í Miami veltir upp í fyrirlestri sem haldinn verður við Háskólann á ... Lesa »

Mynd sem Linda Ólafsdóttir tók fyrr í veturMynd: Linda Ólafsdóttir

Veður og ófærð

Þá er vetrarveðrið skollið á aftur eftir mikinn hlýindakafla. Veðurstofan varar við norðan og norðaustan hvassviðri eða stormi (15-25 m/s) víða um land a.m.k. fram á kvöld. Á ... Lesa »

Kristín Einarsdóttir

Má bjóða þér far?

„Má bjóða þér far?” Spurði mig kona. Ég á ekki bíl og þarf því að reiða mig á tvo jafnfljóta, strætó eða “Svörtu þrumuna” sem er hjólið mitt . Ég bý á Akureyri og ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Að kúra með tígrisdýri

Um daginn sat ég með kaffibolla og renndi hugsunarlaust yfir Fésbókina. Augun staðnæmdust við mynd af gamalli konu og í flæðinu sem skapast milli svefns og nægrar koffeininntöku renndi ég ... Lesa »

Candle

12 ára drengur lést í bílslysinu í Skagafirði

Drengurinn sem lést í bílveltu við bæinn Egilsá í Norðurárdal í Skagafirði í fyrradag hét Blængur Mikael Bogason og var nýorðinn tólf ára. Hann var farþegi í jeppa sem lenti út af ... Lesa »

Steingrímur J. Sigfússon

Tímamót og tækifæri

Á dögunum urðu nokkur tímamót í mínu pólitíska lífi þegar ég eftir 14 ára samfellda formennsku í Vinstrihreyfingunni grænu framboði lét af því embætti og Katrín Jakobsdóttir tók ... Lesa »

Vífill Karlsson lektor flutti erindi sitt á Akureyri.

Stærðarhagkvæmni er ekki sjálfgefin

Ef tvö stór sveitarfélög sameinast getur skapast togstreita um þjónustu og jafnvel þensla sem verður til þess að éta hagræðingu á öðrum sviðum upp. Þetta kom fram í umræðum um ... Lesa »

Hermann Óskarsson

Fann manntalið á öskuhaugunum

Út er komin bókin Félagsgerð Akureyrar 1785-2000: Upphaf og þróun þéttbýlis, stéttaskiptingar, stjórnmála og atvinnulíf eftir Hermann Óskarsson dósent við Háskólann á Akureyri. ... Lesa »

Möðruvallaprestakalli aftur skipt upp

Á kirkjuþingi, sem slitið var í dag, var samþykkt að Möðruvallaprestakalli verði aftur skipt upp í tvö prestaköll. Það varð til við sameiningu Möðruvalla- og Hríseyjarprestakalls í ... Lesa »

bjorgun

Björgunarsveitir á leið í Svarfaðadal

Björgunarsveitir á Norðurlandi eru nú á leið í Svarfaðardal að sækja göngukonu sem slasaðist í fjalllendi. Konan, sem var á ferð með gönguhópi, er líklegast fótbrotin. Slysið ... Lesa »

Heimspólitíkin krufin á Akureyri

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gær verkið Kaktusinn eftir Juli Zeh í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur, leikhússtjóra LA. Margir hafa beðið í ofvæni eftir sýningunni enda þótti ... Lesa »

Samhengi hlutanna

Um sýningu Finns Arnars og Þórarinns Blöndal Sýningin Samhengi hlutanna stendur nú yfir í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri, en að henni standa myndlistamennirnir Finnur Arnar Arnarson ... Lesa »

Björn Þorláksson

Skólakerfi á krossgötum

Félag grunnskólakennara hyggst nú í samráði við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga endurskoða þá skólastefnu sem ... Lesa »

Skoða meira