Fyrr í sumar óskaði framkvæmdadeild Akureyrarbæjar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu garða og voru niðurstöður vals dómnefndar kynntar á Akureyrarvöku. Að valinu í hverjum flokki stóðu Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðs Akureyrar, Guðrún Björgvinsdóttir garðyrkjuverkstjóri hjá framkvæmdadeild Akureyrar og Matthildur Ásta Hauksdóttir forstöðumaður Vinnuskóla Akureyrar.
Eftirfarandi garðar fengu viðurkenningu:
Yngri garður: Klettaborg 31.
Eigandi: Margrét Jónsdóttir.
Skemmtileg lóð með miklum hæðarmun. Stórt sprengigrjót er notað til að taka af hæðarmuninn. Fallegur og fjölbreyttur trjágróður er síðan notaður til að binda jarðveginn enn frekar. Skriðmispillinn áberandi flottur fremst í beðinu. Hellulagt bílastæði og tenging allt í kring um húsið. Vestan við húsið er stór verönd, afmörkuð með timburskjólvegg, með heitum potti og sumarblómakerum. Lítil morgunverönd er á baklóðinni. Í heildina vel hirtur garður með miklu og góðu plöntuvali.
Eldri garður: Austurbyggð 12.
Eigendur: Magnús Magnússon og Sigrún Rúnarsdóttir.
Eldri garður sem hefur fengið góða andlitslyftingu á seinni árum. Flott framlóð með hellulögðu bílastæði og snyrtilega afmörkuðum beðum. Baklóðin er ekki síðri með svipuðum útfærslum á beðum. Afar fjölbreytt plöntuúrval þar sem plöntum er haganlega fyrir komið og greinilega hugsað um að hafa lóðina fallega frá vori til hausts. Töluvert mikið af sumarblómum sem ræktuð eru í gróðurskála sem áfastur er húsinu. Grasflatir mjög fallegar og afmarkaðar með smáum hellum. Í heildina mjög áhugaverð og ákaflega vel hirt lóð.
Fjölbýli: Stekkjartún 10.
Eigendur: Ágústa Kristjánsdóttir og Kristinn Hreinsson.
Mjög falleg framlóð með fjölbreyttum gróðri í lítillega upphækkuðum beðum og smekklegri lýsingu ásamt plöntum í kerum við innganginn og steyptu bílastæði. Á baklóðinni er mjög fjölbreyttur gróður í upphækkuðum beðum. Rósir töluvert áberandi, ásamt klifurplöntum og ávaxtatrjám. Þar má einnig líta stórar verandir með timburskjólveggjum, dálítið stallaðar og mjög athygliverð blanda af timbri og hellum. Afar vel hönnuð og smekkleg lóð í alla staði.
Fyrirtæki: Dvalarheimilið Hlíð, Austurbyggð 17.
Eigandi: Akureyrarbær.
Falleg lóð á alla kanta og vel hirt. Aðkoman hellulögð og umlukin gróðri. Inngarðarnir sunnan við húsið eru alveg til fyrirmyndar og má þar líta mjög fjölbreyttan gróður, hellulagða stíga, tjörn, gosbrunn, lítinn púttvöll, stóla, borð og bekki. Nýjasta viðbótin þar sem matjurtagarðarnir eru, auka enn á fjölbreytnina. Auk þess eru á lóðinni hænsnakofi og kanínur í búrum. Gömlu lóðirnar við raðhúsin standa einnig fyrir sínu. Í heildina vel skipulögð lóð og afar snyrtileg og þjónar sínu hlutverki vel.
Heimild: akureyri.is
Myndir: Ragnar Hólm Ragnarsson





