Í síðustu færslu var viðfangsefnið stórhýsið París við Hafnarstræti 96 en hér er það næsta hús, Hafnarstræti 94 sem stendur á horni Kaupvangsstrætis og Hafnarstrætis en það hús er einnig kennt við evrópska stórborg. Þessi miklu glæsihýsi reistu tveir bræður, stórkaupmennirnir Sigvaldi og Jóhannes Þorsteinssynir með fjögurra ára millibili. En það var semsagt Jóhannes Þorsteinsson sem reisti Hafnarstræti 94 árið 1909. Rak hann þarna verslunina Hamborg og hefur húsið verið kallað það síðan.
Stíll hússins er afar sérstakur og eiginlega einstakur. Húsið er tvílyft timburhús, bárujárnsklætt með portbyggðu lágu valmaþaki. Það er því sem næst ferningslaga á grunnfleti með valmaþaki og hornkvistum sem gefa húsinu sérstakan svip. Þá eru gluggapóstar margskiptir og skrautlegir og eru ekki síður mikið sérkenni á húsinu.
Frá upphafi hefur verið verslunarrekstur á neðri hæð en íbúð eða skrifstofur á þeirri efri. Vel getur verið að íbúðir hafi um tíma verið fleiri en ein á efri hæð enda grunnflötur hússins stór. Ekki kann ég að nefna alla þá starfsemi þarna hafa verið þessi 104 ár en meðal verslana sem þarna hafa verið seinni áratugina eru Sporthúsið og 2007-10 var þar sólarhringsverslun 10-11. Nú er þarna verslun Rammagerðarinnar á götuhæð og lögmannstofan LEX á efri hæð.
Líklega um miðja síðustu öld var húsið forskalað með skeljasandsmúr og skipt um gluggapósta og var húsið lengi vel brúnleitt að lit. Húsið var farið að láta nokkuð á sjá um 2004 þegar endurbætur á því hófust. Fyrri myndina tók ég 18.apríl 2006 þegar endurgerð var í fullum gangi en nú hefur húsið verið fært í sem næst upprunalegt horf að utan. Nýrri myndina af húsinu tók ég í síðustu viku, 27.ágúst 2013 þar sem mér þótti einsýnt að ég þyrfti að láta aðra mynd fylgja þessari færslu en þá sem ég átti fyrir þar sem húsið er í miðri endurbyggingu.
Arnór Bliki Hallmundsson





