Fjallskilastjórar í Þingeyjarsýslu ákváðu á fundi með sýslumanni, almannavörnum og ráðanauti á Húsavík í kvöld að flýta göngum í allri suður-Þingeyjarsýslu og Kelduhverfi vegna slæmrar veðurspár fyrir komandi helgi. Á sumum svæðum verður farið í göngur strax á morgun, en á miðvikudag og fimmtudag á öðrum svæðum. Stefnt er á að rétta í flestum réttum sýslunnar áður en óveðrið skellur á og vonast bændur eftir skaplegu veðri fyrrihluta föstudags til þess. Þetta kemur fram á fréttavefnum 641.is
Sæþór Gunnsteinssonn bóndi í Aðaldal sem sat fundinn segir samtali við blaðamann 641.is að einhugur hafi verið meðal bænda um að flýta göngum vegna veðursins því enginn vildi lenda í því sama og í fyrra þegar mörg hundruð kindur drápust í septemberóveðrinu.
Samkvæmt nýjustu veðurspá verður veðrið heldur verra en spáð var í morgun og lægðin heldur dýpri en sú sem olli óveðrinu í fyrra. Henni á að fylgja mikið hvassviðri og gríðarleg úrkoma sem verður sennilega að mestu leiti snjókoma ofan við 200 metra hæðarlínu. Einungis átta vikur eru liðnar síðan bændur í Aðaldal slepptu fé í afrétt og verður því viðvera þess í afrétt óvenju stutt þetta árið.
Einnig hafa borist af því fréttir að göngum og réttum verði flýtt í Skagafirði og í Grýtubakkahreppi
-SBS
















