Vegurinn upp Eyjafjarðardal kemur ekki vel undan vetri og þar eru enn miklir snjóskaflar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem Páll Rúnar Traustason hjá Ferðafélagi Akureyrar tók um síðastliðna helgi innarlega í Eyjafjarðardal.
Menn frá Vegagerðinni eru nú að vinna við að laga veginn og reikna með að eftir morgundaginn, þ.e. á föstudag, verði leiðin orðin fær jepplingum. Nú er leiðin fær stærri jeppum en vegurinn er grófur og seinfarinn og verður það áfram.
Það er allra veðra von á hálendinu þó nú sé hásumar því þegar Páll Rúnar var á leið í Laugafell sl. föstudagskvöld moksnjóaði á leiðinni, „það er meiri snjór á þessum slóðum núna en hefur verið í mörg ár á þessum tíma,“ segir Páll Rúnar en segir allt vera í mjög góðu standi í Laugafelli.


