Í þennan graut geturðu notað þau grjón/flögur sem þér finnast best.
- Hafragrjón/hirsiflögur/ bókhveitiflögur/byggflögur
- Vatn
- 1/4 tsk Kanill
- 1 msk sólblómafræ eða chia fræ
- 5 möndlur eða hnetur
- 1/4 epli
Látið vatnið sjóða. Setjið grjónin út í. Stráið kanil yfir (passa að setja ekki of mikið) og sjóðið í 1/2 mínútu.
Hellið í skál og látið standa í smá stund. Stráið fræjunum út á, ásamt hnetunum. Skerið eplið niður og setjið út á.
Sumum finnst gott að hafa grautinn þykkan og hafa þá lítið vatn í hlutfalli við grjón. Gott er að bera fram með örlitlu hunangi út á.
Fleiri góðar uppskriftir má finna á allskonar.is
