Flokkur heimilanna var stofnaður 19. mars s.l. og daginn eftir var haldinn baráttufundur í Háskólabíó, þar sem ég svaraði spurningunni, að von þeirra heimila sem eiga ekkert nema skuldir og þeirra heimila sem eru í framfærsluvanda, samtals um 2/3 allra heimila, væri fólkið sjálft með atkvæðisrétti þeirra í komandi kosningum. Ræðu mína er hægt að heyra á www.flokkurheimilanna.is eða á youtube.com
Næstkomandi mánudag 8. apríl kl 18 verður kynningarfundur Flokks heimilanna í húsnæði Rauðakrossins að Viðjulundi þar sem stefnuskrá flokksins verður kynnt af mér og þrír efstu frambjóðendur flokksins í kjördæminu, Árni Þorsteinsson, Brynjólfur Ingvarsson og Emil K. Thorarensen flytja ávörp.
Verðrtryggð húsnæðislán.
Þau eru að hrifsa heimilin af einstaklingum, þannig að talið er í dag, að um 60% heimila séu í raun eignir fjármálastofnana. Fram hefur komið að neikvæð staða þeirra sem eru á aldrinum 22-42 ára sé mínus 82 milljarðar króna. Þetta er sá hópur, sem á að knýja hagkerfið áfram með eftirspurn sinni á næstu árum og um leið að útvega ríkinu skatttekjur til að sjá hinum eldri farborða. Heil kynslóð er í þessum sporum. Þessi kynslóð var skilin eftir meðan þeir sem höfðu aðstöðu og upplýsingar í ársbyrjun 2008 fóru að koma fé sínu undan. Fimm þúsund heimili eru í vanskilum hjá Íbúðarlánasjóði að upphæð frá hruni um sjó og hálfur milljarður. Lögvarin framkvæmd fjármálastofnana er ekki spurning um að greiða lán sem var tekið, heldur að mínu mati ólögmæt eignaupptaka á heimilum og eignum. Verðtrygging var sett á með lögum og hana er sannarlega eins hægt að afnema með lögum. Á síðasta ári hækkuðu lánin um nálægt 60 milljarða og enn hækka þau. Gengistryggð lán hafa verið dæmd ólögleg og verðtryggðu neytendalánin eru í dómsmeðferð. Munurinn í dag milli þeirra sem höfðu efni á að taka gengistryggt íbúðarlán að upphæð um 20 milljónir og þeirra sem höfðu ekki efni á því og tóku verðtryggt lán, er um 10 milljón krónu hærri skuld hins síðar nefnda, miðað við lok greiðslu á lánunum. Er svona framkvæmd boðleg í siðuðu þjóðfélagi?
Stofnanirnar.
Þær hafa þegar verið settar fram með ærnum kostnaði til að láta einstaklinga skrifa bónarbréf og fara aftur og aftur í viðtöl og standa í biðröðum í leit að úrlausnum. Afskriftir fjármálastofnana hjá þeim “stóru” stanslaust í tæp fjögur ár, halda áfram á kostnað heimilanna, sem á að ganga að, meðan nokkuð er þar að hafa. Ekkert virðist breytast í þessari aðför. Heimilin eiga að borga nýjar skuldir með auknum álögum og úrráðaleysi, - Sparisjóðs Keflavíkur, Sjóvá, VBS, eignasafni Dróma og fleiri fyrirtaækja að upphæð um 100 milljarða..
Lífeyrisþegum mismunað
Ekki skal mismun lífeyrisþegum um leið og hvatt er til að þeir verði áfram á vinnumarkaði. Sama regla gildi fyrir alla. Ríkið fær skatta af tekjum þeirra eins og annarra og þetta fólk greiðir í lífeyrissjóði. Flokkur heimilanna vill hætta að telja greiðslur úr lífeyrissjóði með tekjum til grunnlífeyris og færa útreikninginn til þess horfs sem var 1. júlí 2009. Eldri borgarar hafa dregist aftur úr launafólki. Samkvæmt könnun Hagstofunnar frá desember 2012 þarf einhleypingur 295 þús. kr. á mánuði. Lífeyrir einhleypra eldri borgara er samt aðeins 180 þús. kr. á mánuði. Það vantar 115 þús. kr.. Þetta ætlar Flokkur heimilanna að leiðrétta svo framfæri hvers einstaklings sé tryggt. Tenging örorkubóta við tekjur maka er mannréttindabrot. Skilgreina á aftur þá velferð sem þjóðin vill tryggja, hún vill ekki það ástand sem ríkir. Við sem höfum starfsþrek getum ekki horft þegjandi á niðurbrot mannvirðingar öryrkja og aldraðra.
Innantóm orð
Stjórnmálaflokkar hafa lofað að gæta hags þeirra er minna mega sín. Hvar eru efndirnar? Skattlagning og tekjutengingar lífeyris eru komnar í óskiljanlega flækju, sem varla verður leyst úr nema að stokka núverandi kerfi upp. Frumvarp um lífeyristryggingar og félagslegan stuðning dagaði uppi eins og annað. Nú gefst tækifæri til breytinga. Eina vopnið, sem aldraðir og öryrkjar hafa er kjörseðillinn. Þið sem áhuga hafið og viljið styrkja okkur, mætið á kynningarfundinn í húsnæði Rauðakrossins að Viðjulundi kl 18. mánudaginn 8. apríl.
Halldór Gunnarsson
Einn af stofnendum Flokks heimilanna.
