Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar ákvað á síðasta fundi sínum að setja biðskyldu á gatnamót Helgamagrastrætis, Holtagötu og Hlíðargötu að Hamarstíg. Er þetta gert að beiðni Edwards Hákons Huijbens og Andreu S. Hjálmsdóttur, fulltrúa VG en með biðskyldu telja þau að umferðaröryggi í Hamarstígnum sé aukið verulega þar sem ekki séu allir ökumenn meðvitaðir um hægri réttinn sem verið hefur í gildi.
-SBS






















