Leikritið Segðu mér satt eftir Hávar Sigurjónsson verður sýnt í Rýminu á Akureyri 7. sept n.k. Leikritið fjallar um eldri hjón, leikara, sem virðast innilokuð í leikhúsi ásamt fullorðnum syni sínum sem er í hjólastól. Þau máta sig við ótal hlutverk í uppgjöri við fortíðina, en í meðförum þeirra er hugtakið sannleikur afar loðið. Smátt og smátt missa þau tökin þar til skilin milli „leiks og raunveruleiks“ mást út og grímulaus grimmdin ríkir.
Uppsetningin er samstarfsverkefni milli Leikfélagsins Geirfugls og Þjóðleikhússins. Verkið var frumsýnt í Kúlunni 7. febrúar sl. og er ekki við hæfi barna.
Ragnheiður Steindórsdóttir leikur Sigrúnu, Árni Pétur Guðjónsson leikur Karl, Sveinn Ólafur Gunnarsson leikur Gunnar, Heiðar Sumarliðason leikstýrir, Bjartmar Þórðarson er dramatúrgur, Svavar Knútur Kristinsson semur tónlist, Kristína R. Berman er höfundur leikmyndar og búninga en Magnús Arnar Sigurðarson hannar ljós.
-BÞ






















