Lof fá veðurguðirnir norðanlands í síðasta mánuði en þá útdeildu þeir meira sólskini á Akureyri en nokkurn dreymdi um, auk þess sem hiti var sá mesti í júní í heil sextíu ár. Hefur heyrst að Reykvíkingar séu í nokkurri tilvistarkreppu vegna samanburðarins en þar rignldi flesta dagar síðasta mánaðar…
Last fær Akureyrarbær fyrir ósnyrtilegan bæ. Svo skrifar Akureyringur sem sendi blaðinu bréf. „Þetta sumarið hefur bærinn verið mjög illa sleginn og þarf Oddur [Helgi Helgason] að girða sig í brók og laga það strax. Ég segi Oddur af því að hann kom í fjölmiðla fyrr í sumar og sagði að framkvæmdadeild Akureyrar myndi sjá um þetta í sumar vegna þess að einkaaðilar hafi ekki sinnt þessu sem skyldi. Það sýnist mér bara helber lygi miðað við útlit grassvæða núna,“ skrifar Akureyringurinn.
Lof fær Jóhann Hólmgeirsson og fjölskylda hans sem vegna fádæma dugnaðar hefur nú skapað þær aðstæður að Jóhann getur rennt sér niður snarbrattar fjallshlíðar á skíðum og mun keppa á næstu vetrarólympíuleikum í Rússlandi. Þessi ungi Akureyringur sýndi í vikunni að hægt er að yfirstíga erfið veikindi þegar hann skíðaði niður Vindheimajökul í Eyjafirði en hann fæddist með klofinn hrygg en hefur látið drauma sína rætast í kjölfar vel heppnaðar aðgerðar og einstaks lundernis, segir karl sem sendi blaðinu bréf…
Last fá þeir stjórnarliða sem tala eins og að ekki sé ein mikilvægt að leiðrétta forsendubrest vegna verðtryggðra námslána og húsnæðislána, segir námsmaður við Háskólann á Akureyri sem hringdi í blaðið. Telur hann að stökkbreytt námslán séu ekki minna réttlætismál en að leiðrétta húsnæðislán. „Margir námsmenn eru í þeirri stöðu að hafa ekki efni á húsnæðiskaupum. Er ekki orðið tímabært að þessi stjórn geri eitthvað fyrir þá sem erfa munu landið eða er meiningin að færa okkur öll aftur í torfkofana?“ Spurði námsmaðurinn…



