Um síðustu helgi fór Arctic Open golfmótið fram á Akureyri í 27. sinn. Keppendur voru um 140 og þar af 30 erlendir keppendur. Stemningin var góð, þrátt fyrir smá kulda en keppendum var boðið upp á heitt kakó og norðlenskt soðið brauð með hangikjöti til að halda á sér hita.
Laugardaginn 29. júní sl. fékk barnadeildin afhenta ávísun upp á kr. 550 þúsund frá Arctic Open golfmótinu en á hverju ári gefst keppendum mótsins kostur á því að styrkja gott málefni sem að þessu sinni var barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri.


