Suðurhluti Dalsbrautar verður formlega vígður á fimmtudaginn kl. 16.30 þegar klippt verður á borða við gangbrautarljósin við Lundarskóla og síðan haldið fylktu liði suður götuna. Frá þessu segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ
„Fremstar í flokki fara rennireiðar frá Fornbílaklúbbi Akureyrar og eru bæjarbúar hvattir til að fagna þessum nýja áfanga í samgöngubótum bæjarins með því að mæta fótgangandi, á reiðhjólum eða bilfreiðum sínum og fylgja bílalestinni suður undir Miðhúsabraut og aftur til baka að Lundarskóla“.

