Íslenski safnadagurinn er haldinn á sunnudaginn, 7. júlí en söfn um allt land munu taka þátt í deginum. Á Akureyri verður frítt inn á Minjasafnið í tilefni dagsins auk þess sem leiðsögn verður um sumarsýningu safnsins kl. 14 og 15. Sumarsýningin nefnist Norðurljós- næturbirta norðursins og samanstendur af málverkum og ljósmyndum. Málverkin eru eftir danska málarann Harald Moltke sem var í hópi vísindamanna frá dönsku veðurstofunni sem kom til Akureyrar 1899 til að rannsaka norðurljósin. Ljósmyndirnar tók áhugaljósmyndarinn Gísli Kristinsson frá Ólafsfirði á síðasta ári.
Í Gamla bænum Laufási verður boðið uppá leiðsögn um bæinn kl. 14, einnig þar er aðgangur ókeypis. Áhugasamir gestir geta smakkað grasate og starfsfólk Pólarhesta munu teyma undir yngstu gestunum milli kl. 14 - 16.Skáldahúsin þrjú á Akureyri; Nonnahús, Sigurhæðir og Davíðshús verða opin þennan dag og aðgangur ókeypis sem og á Sjónlistamiðstöðinni.
Önnur söfn sem þátttakendur eru í safnadeginum á Eyjafjarðarsvæðinu eru með 2 fyrir 1 af aðgangseyri í tilefni dagsins:
Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi, Akureyri
Hús Hákarla–Jörundar, Hrísey
Mótorhjólasafn Íslands, Akureyri
Byggðasafnið Hvoll, Dalvík
Náttúrusetrið Húsabakka, Svarfaðardal
Útgerðarminjasafnið á Grenivík
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Eyjafjarðarsveit



