Boðið upp á hvannar-sushi í Hrísey

Boðið upp á hvannar-sushi í Hrísey

Hríseyjarhátíðin fer fram um næstu helgi, 12.-14. júlí, og eru nú eyjaskeggjar á fullu í undirbúningi og mikil stemmning í eyjunni. „Það eru allir eyjarskeggjar saman í þessu og í dag förum við að undirbúa hátíðarsvæðið,“ segir Jón Gunnar Th. framkvæmdastjóri hátíðarinnar.

„Þetta verður sannkölluð fjölskylduhátíð og mikil dagskrá fyrir alla aldurshópa,“ segir Jón Gunnar en meðal annars verða þrjár ólíkar óvissuferðir, ein fyrir börn, önnur fyrir unga fólkið og sú þriðja fyrir fullorðna. „Þá ætlum við að koma fólki á óvart út um alla eyju“.

Tónlist spilar stóra rullu á hátíðinni, í sundlauginni verður plötusnúður, fiðluleikur á höfninni og tónlist um borð í ferjunni. „Það verður tónlist hvert sem þú ferð því það verða trúbadorar út um alla eyju að spila,“ segir Jón Gunnar en ratleikur um eyjuna verður í gangi alla helgina.

Í fjörunni verður sandkastalakeppni og prammahlaup en einnig verður boðið upp á fjöruferð með Skralla trúð. Á svæðinu verða líka sápurennibrautir og sápufótbolti.

Á hátíðarsvæðinu verða hamborgarar og pylsur grillaðar en þar verður líka boðið upp á sérstakt hvannar-sushi og hvannar-plokkfisk enda vex mikið af hvönn í Hrísey.

Á laugardagskvöldið verður svo stóra kvöldið en þá fer fram kvöldvaka þar sem margt gott tónlistarfólk treður upp, m.a. hljómsveitin Sister sister, Brynja & Ósk, Sölvi Árnason sem syngur lög eftir Johnny Cash, dalvíski trúbadorinn Haraldur Örn Haraldsson og fleiri en botninn í tónleikana slær sjálfur KK. En að tónleikunum loknum verður varðeldur og brekkusöngur sem Evróvisjónhetjan Eyþór Ingi leiðir.

„Það er gríðarmikil stemmning í eyjunni og ég er viss um að það verður gott verður og þetta verður mögnuð skemmtun,“ segir Jón Gunnar að lokum.

Hríseyjarferjan siglir á tveggja tíma fresti alla helgina svo fólk getur valið hvort gist er í eynni en nóg er af tjaldsvæðum og hægt er að koma með tjaldvagna í ferjuna en þá þarf að hringja og láta vita af því fyrirfram. Fleiri upplýsingar um Hrísey, hátíðina og ferjuna má finna á vefnum hrísey.net. Aðgangur inn á hátíðina sjálfa er ókeypis en þátttökugjald er í suma viðburðina.

Hvar er samviskan?

Nú er ég nýlega flutt hingað norður, u.þ.b. hálft ár síðan. Ég tel mig vera góðan ökumann, ber virðingu fyrir öðrum í umferðinni, legg bíl mínum rétt í stæði, þ.e. gæti ... Lesa »

Vinir Akureyrar gegn kynferðisofbeldi

Vinir Akureyrar, sem eru aðstandendur Einnar með öllu hátíðarinnar sem haldin verður á Akureyri um Verslunarmannahelgina, sendu frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem ítrekuð er sú ... Lesa »

Hjóladagar hefjast í dag

Hjóladagar bifhjólaklúbbsins Tíunnar hefjast í dag með hópakstri sem fer frá Ráðhústorgi kl. 19 og endar með vöfflukaffi á Mótorhjólasafni Íslands. Á dagskrá Hjóladaga eru svo ... Lesa »

Sveitabístró og staðir án stæla

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir gegnir ýmsum embættum og trúnaðarstörfum. Hún er fjárfestir, eigandi Pizza Hut, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu og svo hlaut hún nýverið ... Lesa »

Arkitekt ber af sér sakir

Logi Már Einarsson arkitekt á Akureyri segir ekki rétt sem akureyrskur borgari hafði eftir honum og lagði út af með neikvæðum hætti í „Lof og last“ dálki Akureyrar vikublaðs í dag. ... Lesa »

Lengd refsivist eftir slagsmál í fangelsi

Refsifangi sem réðist í fyrrasumar á annan fanga í borðsal Fangelsisins á Akureyri hefur í Héraðsdómi verður dæmdur til að afplána einn mánuð aukalega vegna brots síns. Hann þarf ... Lesa »

Misjafnar reglur um vinnuskóla

Í yfirliti sem Akureyrarbær hefur unnið um samanburð stærstu sveitarfélaga á launum ungmenna í vinnuskólanum vegna fréttar blaðsins í síðustu viku kemur í ljós að Fjarðabyggð ... Lesa »

Óánægja og vonbrigði

Mikil vonbrigði eru meðal fagaðila í geðheilbrigðismálum eftir að í ljós kom að enginn sótti um stöðu barna- og unglingageðlæknis við Sjúkrahúsið á Akureyri. Enginn barna- og ... Lesa »

Eigum í engin hús að venda

Hjörleifur Finnsson þjóðgarðsvörður á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs telur ekki að einhliða stífni af hálfu hins opinbera hafi valdið samstarfsslitum við Ferðafélag Akureyrar ... Lesa »

Björn Þorláksson

Ferðaþjónusta á krossgötum

Miklar umræður hafa orðið um þyrluflug í ferðaþjónustu hér á landi síðustu vikur. Margir telja að þyrluþjónustan sem starfrækt hefur verið á Akureyri í sumar sé frábær viðbót ... Lesa »

Fjölskyldujóga í Kjarnaskógi

Laugardaginn 20. júlí nk kl. 13-14 verður fjölskyldujógatími á grænu túni í góðu veðri við sólúrið í Kjarnaskógi. Það er Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari, sem ... Lesa »

Háfleygt í Mjólkurbúðinni í Listagilinu

Helen Molin opnar sýninguna Háfleygt í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 20.júlí kl. 14. Helen sýnir 300 mynda seríu sem hún vinnur með blandaðri tækni ... Lesa »

Atvinnuleysi á Akureyri mest í aldurshópnum 20-34 ára

Atvinnuleysi á Akureyri mældist 3% í júnímánuði og er það 0,4% minna en í júní 2012. Mest er atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 20-34 ára og er sá hópur yfir helmingur ... Lesa »

Kristjana Arngrímsdóttir í Akureyrarkirkju

Söngkonan vinsæla, Kristjana Arngrímsdóttir, kemur fram á þriðju Sumartónleikum í Akureyrarkirkju þetta sumarið. Með henni koma fram þeir Örn Eldjárn og Jón Rafnsson. Þau munu flytja ... Lesa »

Hvað voru Gásir og hverjir komu þangað og hvað gerðu þeir?

Hvað áttu Þórður kakali og Guðmundur dýri sameiginlegt? Hvað voru Gásir og hverjir komu þangað og hvað gerðu þeir? Langar þig að kynnast sögu miðaldakaupstaðarins á Gásum í ... Lesa »

Húni kemur kl. 12 á laugardag

Í gær sögðum við frá því að Húni II kæmi til Akureyrar á laugardag og bátaeigendur eru hvattir til að taka á móti Húnamönnum með því að sigla til móts við Húna á ... Lesa »

Mikill snjór í Eyjafjarðadal

Vegurinn upp Eyjafjarðardal kemur ekki vel undan vetri og þar eru enn miklir snjóskaflar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem Páll Rúnar Traustason hjá Ferðafélagi Akureyrar tók um ... Lesa »

Hlupu 96 km. yfir móa, þúfur, hraun, snjó, sanda og læki

Hlaupaferðafyrirtækið Arctic Running stóð fyrir 3 daga hlaupaferð með leiðsögn frá Mývatni norður í Ásbyrgi í byrjun júlí. 6 hlauparar lögðu af stað frá Reykjahlíð, upp í ... Lesa »

Bátseigendur sigli á móti Húna á laugardag

Húni II kemur til Akureyrar nk. laugardag 20. júlí Kl. 13:00 og eru bátseigendur hvattir til að sigla á móti honum og fylgja að Torfunefsbryggju. Um kvöldið kl: 20:00 verða tónleikar ... Lesa »

Hildigunnur í stjórn Evrópska endurlífgunarráðsins

Á fundi framkvæmdaráðs (General Assembly) evrópska endurlífgunarráðsins (ERC) þann 27. júní sl. var kjörin ný stjórn til tveggja ára. Nú eiga Akureyringar - og þar með Íslendingar - ... Lesa »

Hús dagsins: Naustabæirnir

Í síðasta pistli tók ég fyrir Hamrabæina tvo en nú færum við okkur norðar og framar á höfðanum mikla neðan Súlumýra þar sem m.a. er Brekkan og Naustaborgir. Naust eru fornt býli ... Lesa »

Garðaganga í Hörgársveit

Eyjafjarðardeild Garðyrkjufélags Íslands stendur fyrir garðagöngu fimmtudaginn 18. júlí kl. 17.00 í Hörgársveit. Skoðaðir verða garðar að Fornhaga þar sem Sesselja Ingólfsdóttir ... Lesa »

Stuðkompaníið snýr aftur

Akureyringar taka með opnum örmum á móti gestum og gangandi um verslunarmannahelgina á fjölskylduhátíðinni Ein með öllu. Áhersla er lögð á fjölbreytta dagskrá og að allir finni ... Lesa »

Heimsmeistaramót á Blönduósi

Laugardaginn 20. júlí verður haldið á Blönduósi „heimsmeistaramót í Lomber“. Mótið fer fram í tengslum við árlega Húnavöku og verður það í annað sinn sem slíkt mót er ... Lesa »

Porthátíð við Flóru

Fimmtudaginn 18. júlí 2013, kl. 12-18 verður porthátíð við verslunina Flóru sem staðsett er í Hafnarstræti 90. Þar verður útimarkaður og tónleikar en það eru hljómsveitirnar ... Lesa »

Skoða meira