Nú ætla ég að fara að röfla. Það er svo gaman. Því að ég er femínisti. Ég hirði ekkert um útlitið heldur nöldra endalaust vegna þess að ég er bitur. Ég vil skemma alla stemmingu með því að setja út á allt og sérstaklega karlmenn, að ástæðulausu. Ég raka mig ekki og stunda ekki kynlíf þó að það sé það sem ég þarfnast mest, að einhver bara þrykki duglega í mig. Finnst þér það ekki?
Fyrir stuttu var gerð könnun í MA þar sem nemendur áttu að svara hverjar hugmyndir þeirra væru til jafnréttissinna og femínista og í henni kom í ljós að flestir MA-ingar sögðu femínista neikvætt hugtak. Ætli þeir hafi verið að hugsa eitthvað í þessa veru um mig?
Í könnunninni kom fram að lang flestir nemendur töldu sig jafnréttisinna. Það eru frábærar niðurstöður! Því að jafnrétti á Íslandi er ekki náð. Konur fá lægri laun en karlmenn og þær eru í minnihluta í öllum áhrifastöðum.
Jafnframt kom það fram að meirihluti nemanda sagðist ekki vera femínistar og margir sögðu það neikvætt hugtak.
Hvað skyldu þá þessir crazy feministar vilja sem hræðir svona ungdóminn? Alræði kvenkynsins og samfélag þar sem karlmenn eru kúgaðir? Nei, femínistar vilja eins og þið jafnréttissinnarnir: jafnrétti.
Báðir aðilar eru greinilega að vinna að sama markmiði. Þetta er því auðvelt reikningsdæmi.
Ef þú ert að berjast fyrir því sama og einhver annar, afhverju ættirðu þá að vilja gera lítið úr honum?
Afhverju ættir þú að grafa undan skoðunum einhvers sem er í rauninni er að aðstoða þig á leið þinni að settu marki?
Þó að þér líki ekki allir femínistar og sért kannski ekki sammála öllu sem þeir segja, þá skaltu hafa í huga að þeir eru samherjar þínir og með því að grafa undan þeim veikirðu stöðu málstaðar ykkar.
Saman getum við bætt samfélagið okkar og lifað í heimi þar sem það skiptir ekki máli hvort við séum stelpur eða strákar. Þar sem dætur okkar og synir eru metin til jafns og hafa frelsi til þess að gera það sem þau langar í lífinu.
Dagbjört Katrín Jónsdóttir
Höfundur er nemi á 4. ári í MA
Greinin birtist áður í Muninn, skólablaði MA




