Hlupu 96 km. yfir móa, þúfur, hraun, snjó, sanda og læki

Hlaupaferðafyrirtækið Arctic Running stóð fyrir 3 daga hlaupaferð með leiðsögn frá Mývatni norður í Ásbyrgi í byrjun júlí. 6 hlauparar lögðu af stað frá Reykjahlíð, upp í Leirhnjúk, í Gjástykki og að Eilífsvötnum þar sem var tjaldað fyrri nóttina. Hópurinn var í fantagóðu formi og tók því marga aukakróka á leið sinni þennan dag sem endaði í 39 km. Við Eilífsvötn beið þeirra tjöld, eldhústjald og farangurinn þeirra sem hafði verið keyrður frá Reykjahlíð yfir daginn. Það viðraði vel til hlaupa þennan dag, þrátt fyrir að kalt væri (6°C) en það var skýjað yfir daginn og rigndi aðeins í hádeginu við Leirhnjúk. Talsverður snjór og skaflar voru enn á svæðinu og gerði leiðina erfiðari en ella.

Daginn eftir var hlaupið svokallað Þingeyskt þúfuhlaup frá Eilífsvötnum yfir í Vatnajökulsþjóðgarð að Dettifossi. Það þótti þægileg leið þar sem engir snjóskaflar voru á þeim hluta (í byrjun júlí). Sama dag var hlaupið frá Dettifossi eftir hádegismat, í Hafragilsundirlendi og Jökulsárgljúfrum fylgt norður að Hólmatungum og tjaldað í Vesturdal. Þar grillaði hópurinn læri og hlauparar böðuðu sig í læknum eftir 35 km. hlaupadag. Þá hafði aðeins hlýnað frá því daginn áður og mikil stemning í hópnum eins og sjá má á myndunum.

Þriðja daginn var farið í Svínadal – hlaupandi auðvitað - og svo varJökulsárgljúfrunum fylgt þar til komið var að Ásbyrgi, hlaupið var uppi á barmi byrgisins og svo niður í byrgið og endað við Botnstjörn. Í heildina var leiðin 96 km. með öllum aukakrókunum en stoppað var við skemmtilega staði til að njóta þeirra. Það stóð upp úr hjá kanadamönnunum í hópnum aðkoman að Eilífsvötnum og sögðu þeir leiðina í gegnum Gjástykki og að vötnunum þá fallegustu sem þau höfðu hlaupið yfir ævina – en hlaup eru þeirra lífstíll.

Ferðin fékk það góðar undirtektir að nú þegar er búið að staðfesta aðra álíka ferð þar sem hlaupið verður 85km á 3 dögum frá Mývatnssveit í Ásbyrgi 30.ágúst – 1.september. Leiðsögumaður leiðir hópinn í gegnum svæðið bíll flytur farangurinn milli staða svo hlauparar geta haft létta dagpoka á leiðinni. Hafið samband við info@arcticrunning.is fyrir nánari upplýsingar.

Gásir2

Fornleifadagskrá á Gásum

Fimmtudaginn 17. júlí standa Minjasafnið á Akureyri, Gásaverkefnið, AkureyrarAkademían og aðstandendur fornleifarannsókna á Gásum fyrir ... Lesa »

nordisk ljus

Norræna ljósið til Akureyrar

Dagana 19.-23. júlí næstkomandi heldur Norræna ljósið, Nordisk ljus, vinnustofu á Akureyri þar sem sjónlist verður í brennidepli. Yfirumsjón með ... Lesa »

kdvPE

Ókeypis raftónlist

Þann 19. júlí næstkomandi heldur íslenska raftónlistarforlagið Möller Records tónleika á Akureyri Backpackers kl. 21. Fram koma Einar Indra, ... Lesa »

Velferðarráðuneyti

Sameining heilbrigðisstofnana

Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til ... Lesa »

Þórðarstaðaskógur

Frá norðlenskum skógum

Í júní síðastliðnum voru gróðursettar mörgþúsund trjáplöntur innan við Þórðarstaði í Fnjóskadal. Um er að ræða samstarfsverkefni Skógræktar ríkisins ... Lesa »

bolli

Þönglabakkamessa

Þann 27. júlí næskomandi kl. 14 verður messað á Þönglabakka í Þorgeirsfirði. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti þjónar og Petra ... Lesa »

S5

Amerísk sítrónubaka

Þessi ameríska sítrónubaka er mjög góð - henni fylgir dálítið flókin uppskrift, en það tekur samt ekkert langan tíma að gera hana! Uppskriftinni er ... Lesa »

jóhannes

Réttindi verða söluvara

„Þó svo að foreldrar og krakkarnir meti störf manns og maður fái reglulega þakkir fyrir og finni sig vel í starfinu, þá er maður bara búinn að gefast ... Lesa »

Ákvörðunin var tekin á fundi í dag

Áfrýjað til Hæstaréttar

Á fundi bæjarráðs þann 10. júlí síðastliðinn samþykkti ráðið að áfrýja tveimur dómum til Hæstaréttar. Dómarnir varða ólögmætar uppsagnir á tveimur ... Lesa »

evabaldur

„Við verðum öll hrædd, Baldur“

Ræflavík - íslensk þýðing á heiti verksins Punk Rock eftir Simon Stephens, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Verkið er þýtt og staðfært af ... Lesa »

hlynur2

Miklu meira en listasafn

Það eru veigamiklar breytingar framundan hjá Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri. Stjórn Akureyrarstofu og bæjarstjórn Akureyrar hafa afgreitt nýja ... Lesa »

reitir2014_2

Reitaopnun

Verkefnið Reitir býður árlega 25 einstaklingum viðsvegar að úr heiminum til Siglufjarðar að taka þátt í tilraunakenndri nálgun á hinni hefðbundnu ... Lesa »

föt

Markaður á Hamarkotstúni

Nokkur ungmenni hafa ákveðið að halda markað á Hamarkotstúninu laugardaginn 12. júlí og sunnudaginn 13. júlí næstkomandi. Seld verða föt (dömu-, ... Lesa »

Akureyri Ljósveita áætlun 2014

Ljósveituvæðing á Akureyri

Að undanförnu hefur Míla unnið að uppsetningu Ljósveitu á Akureyri. Á vormánuðum var hafist handa við uppsetningu götuskápa í hverfum bæjarins. Þeim ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!