Tjaldafjölskylda sækir Háskólann á Akureyri

Tjaldafjölskylda sækir Háskólann á Akureyri

Tjaldafjölskyldan við Háskólann á Akureyri. Mynd af vef skólans

Tjaldapar hefur sl. 15 ár haldið til á þaki Háskólans á Akureyri og nú spókar parið sig ásamt ungum sínum í grasinu við skólann.

Á vef Háskólans er eftirfarandi frásögn og myndir:

Að venju gleður tjaldurinn starfsfólk Háskólans á Akureyri. Árleg heimsókn og sumardvöl tjaldapars háskólans stendur nú yfir og í fyrstu héldu menn að einungis tveir ungar hefðu komið úr eggi að þessu sinni. Laugardaginn 15. júní, sama dag og brautskráning fór fram við HA, sást til unga sem hafði látið sig vaða niður af þakinu og var með öðru foreldri sínu í ormaleit í runnabeði á meðan annar sást kúra sig enn uppi á þaki. En annað koma á daginn, því það eru þrír ungar sem fylgja foreldrum sínum um lóðir háskólans og náðist þessi mynd af fjölskyldunni við kennslustund í ætisleit.

Eitthvað fældust nú greyin á meðan starfsfólk E-húss fylgdist með fjölskyldunni út um gluggann og náðist markaðs- og kynningarstjóri á mynd þar sem hún hljóp um með myndavél. Þrátt fyrir að vera í nokkurs konar felubúningi urðu fuglarnir hennar varir og spöruðu ekki varúðarköllin.

Parið byrjaði búskap á þakinu fyrir rúmum 15 árum og fylgist starfsfólk jafnan spennt með þegar foreldrarnir útskrifa ungviðið um mitt sumar, ýta þeim fram af þakinu og út í hinn stóra heim. Tjaldurinn heldur sig yfirleitt nálægt sjó, enda vaðfugl en hann fúlsar þó ekki við hagfelldum aðstæðum inn til landsins á borð við húsþakið á Háskólanum á Akureyri. Tjaldurinn er einkvænisfugl og getur orðið meira en þrjátíu ára gamall. Það er því aldrei að vita hversu lengi parið mun sækja háskólann heim, nema einhver unganna taki við og viðhaldi hefðinni.

Fleiri myndir má sjá á vef Háskólans

 

 

Gengið á brjóstahöldurum

Nákvæmlega á miðnætti í kvöld, laugardaginn 15.júní, munu 88 menn og konur, íklædd fjörlega skreyttum brjóstahöldurum, halda af stað frá Jarðböðunum Í Mývatnssveit, og kraftganga ... Lesa »

Áróðursmaskínan

Í sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra er þess sérstaklega getið að ákveðin upphæð skuli rennar til fjölmiðlunar á svæðinu. Stærstur hluta þess styrkjar kom í ár í hlut N4 ... Lesa »

Réttardagur Aðalheiðar

Í kvöld, 22. júní kl. 22.00, opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir 10 sýningar samtímis í Listagilinu á Akureyri, í öllum sýningarsölum Sjónlistamiðstöðvarinnar og sal ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að mikil ánægja sé með nýju ísbúðina sem hefur opnað í miðbænum á Akureyri þar sem Kaffi költ var síðast til húsa. Aðstandendur búðarinnar eru heppnir, því ... Lesa »

Aheybaró á toppi Rásar 2 vinsældalistans

Sumarslagarinn Aheybaró með akureyska rapparanum Kött Grá Pjé, sem er listamannanafn Atla Sigþórssonar, stökk upp í fyrsta sætið á vinsældarlista Rásar 2 þessa vikuna. Lagið var áður ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fær Páll Óskar Hjálmtýsson fyrir að gefa fjölda ungra Akureyringa kost á að mynda sig með stjörnunni að lokinni tónlistaruppákomu á Ráðhústorgi á sautjándanum. Svo skrifar ... Lesa »

Jónsmessuvaka í Laufási

Í tilefni Jónsmessu verður heilmikið um að vera í Gamla bænum Laufási í Eyjafirði sunnudaginn 23. júní kl 20 – 22. „Þó gestir í Laufási velti sér ekki allsberir uppúr magnaðri ... Lesa »

Sex með ágætiseinkunn í MA

Að morgni mánudagsins 17. júní sl. brautskráði Menntaskólinn á Akureyri 149 stúdenta við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni. Við það tækifæri gerði Jón Már Héðinsson ... Lesa »

Meðal mótmælenda í Istanbul – þegar gasgrímur verða hluti af tilveru fólks

Anna Guðný Júlíusdóttir Akureyringur lýsir hér í Akureyri vikublaði upplifun sinni af ferðalagi í Istanbul. Þarna hefur eins og flestum mun kunnugt soðið upp úr vegna mannréttindamála ... Lesa »

Ferðamenn í norðuljósaferð. Mynd frá Saga-Travel

Góð þátttaka í leiðsögunám á Akureyri

25 nemendur þreyta nú inntökupróf fyrir leiðsögunám hjá Símenntun Háskólans á Akureyri en fyrirhugað er að námið hefjist á Akureyri í haust. „Námið hefur verið í ... Lesa »

Undirboð Íslands

Ómar Ragnarsson komst í hann krappann þegar flugvél sem hann flaug brotlenti á hálendinu sl. mánudag. Ómar slapp heill frá þeirri raun sem og ýmsum öðrum áður. Hann er þekktur fyrir ... Lesa »

Töf á opnun Serrano

Opnun veitingastaðarins Serrano á Akureyri sem áætlað var að yrði þann 14. júní hefur tafist en nú er áætlað að staðurinn opni um miðjan júlí. „Það tók lengri tíma að fara í ... Lesa »

Vegur um Köldukinn hefur verið opnaður með 30 km hámarkshraða

Opnað hefur verið fyrir umferð um þjóðveg nr. 85 sem liggur um Köldukinn til Húsavíkur. Vegurinn hefur verið lokaður við Ystafell vegna aurskriðu síðan 4. júní. Frá þessu segir á ... Lesa »

Oddur Helgi vann fría ferð

„Þetta var dálítið merkilegt en ég var búinn að kaupa mér ferð til Slóveníu en sendi líka til gamans póst þar sem ég svaraði nokkrum spurningum í þessum happdrættisleik og lét ... Lesa »

Yfirvinnubann í Fjallabyggð?

Stjórnsýsluúttekt hefur verið gerð í Fjallabyggð og var skýrsla um málið rædd á almennum íbúafundi í fyrrakvöld á Siglufirði. Markmiðið með verkefninu er að koma fram með ... Lesa »

Halldór ekki á heimleið?

Samkvæmt heimildum blaðsins er Halldór Jónsson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, sem beðið hefur verið eftir mánuðum saman að sneri aftur úr leyfi til starfa við spítalann, í ... Lesa »

Vatn á Svalbarðsströnd ekki lengur mengað

Nýverið menguðust Garðsvíkurvatnsból Svalbarðsstrandarveitu af yfirborðsvatni og því þurftu íbúar á svæðinu að sjóða allt neysluvatn. Nú hafa vatnsbólin hreinsað sig af ... Lesa »

Dagskrá Réttardagsins á laugardagskvöldið

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að laugardagskvöldið 22. júní opnar stærsta sýning allra tíma í Listagilinu þegar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar samtals 10 ... Lesa »

Nafn mannsins sem leitað hefur verið í Hjaltadalsá

Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að ... Lesa »

Björn Þorláksson

Plebbasamfélagið

Kolbeinn H. Stefánsson félagsfræðingur, sem meðal annars hefur kennt við Háskólann á Akureyri, skrapp í bæinn í Reykjavík á sautjánda júní með barnið sitt. Hann hefur bloggað um ... Lesa »

Frömdu akstursbrot sjálfir en kærðu aðra

Í tilkynningu sem Geo Travel sendi frá sér eftir að fyrirtækinu varð ljóst að Akureyri vikublað myndi fjalla um brotið á Öskjuleið kemur fram að skýrar reglur gildi um hvers vegna ... Lesa »

Rýrir trú á Umhverfisstofnun

„Jú, það má segja að það sé óheppilegt að ég, sem einnig er starfsmaður Umhverfisstofnunar, eigi þetta fyrirtæki þegar svona kemur upp. Þetta er ekki heppileg staða,“ segir ... Lesa »

Til þeirra sem málið varðar

Akureyri 19.6.2013 Í kjölfar yfirlýsinga frá N3 samstæðunni um slit á samstarfi við Þórhall Jónsson og Hólmar Svansson við framkvæmd Dynheimaballs sjáum við okkur tilneydda til ... Lesa »

Fjalla um Lúkasarmálið

Á föstudaginn, 21. júní, frumsýnir Norðurbandalagið leikverkið Lúkas í Rýminu á Akureyri. Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar segir verkið vera unnið frá grunni af ... Lesa »

Golfvöllurinn grær vel

Sumarflatir á golfvellinum voru opnaðar sl. helgi en kylfingar á Akureyri voru orðnir langeygir eftir opnuninni en flatirnar komu illa undan vetri. „Þrátt fyrir erfiðan vetur fór grasið ... Lesa »

Skoða meira