Hús vikunnar: Hátún, Sólvangur og Gamli Glerárskóli; Árholt.

Hús vikunnar: Hátún, Sólvangur og Gamli Glerárskóli; Árholt.

Nú finnst mér alveg kominn tími á að færa mig yfir Gleránna en Þorpið hefur e.t.v. orðið dálítið útundan hjá mér. Í Glerárþorpi er fjöldi gamalla og sögufrægra bygginga ekkert síður en sunnan ár. Nú eru það nokkur eldri hús við Höfðahlíð.

Hátún
Fyrsta húsið í þessari umfjöllun er Hátún en það stendur við Höfðahlíð 4. Hátún er byggt 1926, einlyft steinsteypuhús með lágu risi á lágum kjallara. Alla tíð hefur húsið verið íbúðarhús og trúlega hafa einhverjar fleiri byggingar fylgt í upphafi (útihús e.t.v.) en það er þá allt löngu horfið. Gatan Áshlíð byggðist norður frá húsinu uppúr 1965. Húsið og allt umhverfi þess hefur verið tekið vel í gegn síðustu ár, byggt við að norðanverðu og einnig byggður stæðilegur bílskúr austan við. Allar hafa þessar endurbætur heppnast vel, húsið lítur vel út og til mikillar prýði í Höfðahlíðinni.

Hátún

Sólvangur
Höfðahlíðin tekur sveigju upp hjá Ásnum, að því að heita má samsíða Gleránni. Á gilbarminum ofan gömlu brúarinnar, á mótum Höfðahlíðar og Lönguhlíðar og Háhlíðar stendur Sólvangur. Er það steinsteypt hús frá 1944, undir áhrifum frá funkis-stíl. (Ekki tel ég þó útilokað að húsið sé byggt úr r-steini.) Það er með lágu skúrþaki og sennilega eru bílskúr á bakhlið og sólskáli á suðurhlið seinni tíma viðbyggingar. Sólvangur stendur á vel gróinni lóð, þarna eru mikil lerki- og birkitré áberandi og um hásumarið er húsið að heita má hálffalið undir lauf- og barrskrúði.

Sólvangur

 

Gamli Glerárskóli
Beint á móti Sólvangi, uppi á hól undir Ásnum, við Háhlíð stendur Gamli Glerárskóli. Það er einlyft steinsteypt bygging með söðulþaki, byggð 1938. Var húsið byggt sem skólahús fyrir Glerárþorp en skólahald hafði þá verið um 30 ára skeið í Ósi við Sandgerðisbót. Þetta hús var ein allra stærsta og veglegasta bygging Glerárþorps á sínum tíma- en húsið var notað til skólahalds allt til 1974 er Glerárskóli (nýi) var reistur, um 100 metra norðvestan við þetta hús. Þá var farið að fjölga all verulega í Glerárþorpi frá því sem var 1938, margar stórar íbúðablokkir komnar og Holtahverfi u.þ.b. fullbyggt. Það sem helst setur svip á húsið eru stórir og miklir gluggar sem snúa á móti suðri og því hefur væntanlega verið mjög bjart í kennslustofunum. Eftir að húsið lauk hlutverki sínu sem skólahús var þarna m.a. um langt skeið leikskóli en nú er þarna dagvistunarheimilið Árholt.

Gamli Glerárskóli, Árholt

Svo er annað sem ég er duglegur að koma að í hvert skipti sem ég fjalla um Þorpið, að mér finnst stórlega vanta sögurit um Glerárþorp á borð við t.d. Húsakönnunarbækur sem til eru um Oddeyrina og Innbæinn. Bók þar sem hægt væri að fletta upp á hverju gömlu býli og þar kæmi fram byggingarár, hver byggði og “létt” söguágrip. Eitt er víst að sú bók myndi verða í miklu uppáhaldi hjá mér.

Arnór Bliki Hallmundsson

Gengið á brjóstahöldurum

Nákvæmlega á miðnætti í kvöld, laugardaginn 15.júní, munu 88 menn og konur, íklædd fjörlega skreyttum brjóstahöldurum, halda af stað frá Jarðböðunum Í Mývatnssveit, og kraftganga ... Lesa »

Áróðursmaskínan

Í sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra er þess sérstaklega getið að ákveðin upphæð skuli rennar til fjölmiðlunar á svæðinu. Stærstur hluta þess styrkjar kom í ár í hlut N4 ... Lesa »

Réttardagur Aðalheiðar

Í kvöld, 22. júní kl. 22.00, opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir 10 sýningar samtímis í Listagilinu á Akureyri, í öllum sýningarsölum Sjónlistamiðstöðvarinnar og sal ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að mikil ánægja sé með nýju ísbúðina sem hefur opnað í miðbænum á Akureyri þar sem Kaffi költ var síðast til húsa. Aðstandendur búðarinnar eru heppnir, því ... Lesa »

Aheybaró á toppi Rásar 2 vinsældalistans

Sumarslagarinn Aheybaró með akureyska rapparanum Kött Grá Pjé, sem er listamannanafn Atla Sigþórssonar, stökk upp í fyrsta sætið á vinsældarlista Rásar 2 þessa vikuna. Lagið var áður ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fær Páll Óskar Hjálmtýsson fyrir að gefa fjölda ungra Akureyringa kost á að mynda sig með stjörnunni að lokinni tónlistaruppákomu á Ráðhústorgi á sautjándanum. Svo skrifar ... Lesa »

Jónsmessuvaka í Laufási

Í tilefni Jónsmessu verður heilmikið um að vera í Gamla bænum Laufási í Eyjafirði sunnudaginn 23. júní kl 20 – 22. „Þó gestir í Laufási velti sér ekki allsberir uppúr magnaðri ... Lesa »

Sex með ágætiseinkunn í MA

Að morgni mánudagsins 17. júní sl. brautskráði Menntaskólinn á Akureyri 149 stúdenta við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni. Við það tækifæri gerði Jón Már Héðinsson ... Lesa »

Meðal mótmælenda í Istanbul – þegar gasgrímur verða hluti af tilveru fólks

Anna Guðný Júlíusdóttir Akureyringur lýsir hér í Akureyri vikublaði upplifun sinni af ferðalagi í Istanbul. Þarna hefur eins og flestum mun kunnugt soðið upp úr vegna mannréttindamála ... Lesa »

Ferðamenn í norðuljósaferð. Mynd frá Saga-Travel

Góð þátttaka í leiðsögunám á Akureyri

25 nemendur þreyta nú inntökupróf fyrir leiðsögunám hjá Símenntun Háskólans á Akureyri en fyrirhugað er að námið hefjist á Akureyri í haust. „Námið hefur verið í ... Lesa »

Undirboð Íslands

Ómar Ragnarsson komst í hann krappann þegar flugvél sem hann flaug brotlenti á hálendinu sl. mánudag. Ómar slapp heill frá þeirri raun sem og ýmsum öðrum áður. Hann er þekktur fyrir ... Lesa »

Töf á opnun Serrano

Opnun veitingastaðarins Serrano á Akureyri sem áætlað var að yrði þann 14. júní hefur tafist en nú er áætlað að staðurinn opni um miðjan júlí. „Það tók lengri tíma að fara í ... Lesa »

Vegur um Köldukinn hefur verið opnaður með 30 km hámarkshraða

Opnað hefur verið fyrir umferð um þjóðveg nr. 85 sem liggur um Köldukinn til Húsavíkur. Vegurinn hefur verið lokaður við Ystafell vegna aurskriðu síðan 4. júní. Frá þessu segir á ... Lesa »

Oddur Helgi vann fría ferð

„Þetta var dálítið merkilegt en ég var búinn að kaupa mér ferð til Slóveníu en sendi líka til gamans póst þar sem ég svaraði nokkrum spurningum í þessum happdrættisleik og lét ... Lesa »

Yfirvinnubann í Fjallabyggð?

Stjórnsýsluúttekt hefur verið gerð í Fjallabyggð og var skýrsla um málið rædd á almennum íbúafundi í fyrrakvöld á Siglufirði. Markmiðið með verkefninu er að koma fram með ... Lesa »

Halldór ekki á heimleið?

Samkvæmt heimildum blaðsins er Halldór Jónsson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, sem beðið hefur verið eftir mánuðum saman að sneri aftur úr leyfi til starfa við spítalann, í ... Lesa »

Vatn á Svalbarðsströnd ekki lengur mengað

Nýverið menguðust Garðsvíkurvatnsból Svalbarðsstrandarveitu af yfirborðsvatni og því þurftu íbúar á svæðinu að sjóða allt neysluvatn. Nú hafa vatnsbólin hreinsað sig af ... Lesa »

Dagskrá Réttardagsins á laugardagskvöldið

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að laugardagskvöldið 22. júní opnar stærsta sýning allra tíma í Listagilinu þegar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar samtals 10 ... Lesa »

Nafn mannsins sem leitað hefur verið í Hjaltadalsá

Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að ... Lesa »

Björn Þorláksson

Plebbasamfélagið

Kolbeinn H. Stefánsson félagsfræðingur, sem meðal annars hefur kennt við Háskólann á Akureyri, skrapp í bæinn í Reykjavík á sautjánda júní með barnið sitt. Hann hefur bloggað um ... Lesa »

Frömdu akstursbrot sjálfir en kærðu aðra

Í tilkynningu sem Geo Travel sendi frá sér eftir að fyrirtækinu varð ljóst að Akureyri vikublað myndi fjalla um brotið á Öskjuleið kemur fram að skýrar reglur gildi um hvers vegna ... Lesa »

Rýrir trú á Umhverfisstofnun

„Jú, það má segja að það sé óheppilegt að ég, sem einnig er starfsmaður Umhverfisstofnunar, eigi þetta fyrirtæki þegar svona kemur upp. Þetta er ekki heppileg staða,“ segir ... Lesa »

Til þeirra sem málið varðar

Akureyri 19.6.2013 Í kjölfar yfirlýsinga frá N3 samstæðunni um slit á samstarfi við Þórhall Jónsson og Hólmar Svansson við framkvæmd Dynheimaballs sjáum við okkur tilneydda til ... Lesa »

Fjalla um Lúkasarmálið

Á föstudaginn, 21. júní, frumsýnir Norðurbandalagið leikverkið Lúkas í Rýminu á Akureyri. Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar segir verkið vera unnið frá grunni af ... Lesa »

Golfvöllurinn grær vel

Sumarflatir á golfvellinum voru opnaðar sl. helgi en kylfingar á Akureyri voru orðnir langeygir eftir opnuninni en flatirnar komu illa undan vetri. „Þrátt fyrir erfiðan vetur fór grasið ... Lesa »

Skoða meira