Í dag kl. 17 fer fram kynning á myndlistartímaritinu Kiosk í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Í dag er einnig fyrsti dagur í sumaropnun í Verksmiðjunni en frá og með deginum í dag verður þar opið alla daga frá kl. 14 til 17.
Verksmiðjan er samvinnuverkefni hóps listamanna, þar af níu sem eru búsettir í Arnarneshreppi, sem hafa gert með sér samkomulag um að standa fyrir menningarviðburðum og bjóða upp á vinnuaðstöðu í gömlu Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Myndlistartímaritið Kiosk er útgáfuverkefni listafólks sem listakonan Clémentine Roy fór af stað með árið 2009. Hvert tölublað er samstarfsverkefni tveggja listamanna. „Samtal, Ping – pong tölvupóstar. Skipti á upplýsingum, myndum, teikningum, textum í heilann mánuð“.
50 tölublöð hafa komið út á netinu og af þeim hafa 14 komið út í prentaðri útgáfu. Útgáfan DEL’ART tekur þátt í verkefninu og sér um þann hluta þess sem kemur út á prenti.
Yfirstandandi í Verksmiðjunni er sýningin RE – MEMBER - ICELAND/SOUVENUS – DE – SI – LOIN og lýkur henni 23. júní.
Koma listamanna og sýningar eru styrktar af, Menningarráði Eyþings og Ásprenti en bakhjarlar Verksmiðjunnar á Hjalteyri eru CCP games, Bústólpi og Hörgársveit.




