Farið inn í mannlausar íbúðir og sóðað út

Farið inn í mannlausar íbúðir og sóðað út

Aðkoman í eldhúsinu

Höllu Björg Albertsdóttur sem býr í Giljahverfi á Akureyri brá heldur betur í brún í gær þegar hún kom heim og sá að farið hafði verið inn í íbúð hennar á meðan hún var ekki heima og búið að tæma nánast allt úr ísskápnum og brjóta, sulla og hella innihaldinu á gólfið. „Á gólfinu var allt í viðbjóði,“ segir Halla en hún segir frá málinu á Facebooksíðu sinni. „á gófinu var kokteilsósa,remolaði, kjúklingabringur sem var búið að opna og taka þær allar 4 úr og henda þeim á gólfið, það var búið að opna pylsupakka og dreifa þeim út um allt og stíga á þær, tómatsósa, 7 egg brotin á gólfinu, smjörlíki, heilt ostastykki, tómatar, epli, mjólk, skyr, og LÝSI, búið að tæma lýsisflösku yfir gólfið hjá mér!!“ Í stofunni var búið að sletta skyrdrykk og grjónagraut.

Halla hafði skilið íbúðina eftir ólæsta en hún hafði farið að heiman um kl. 18 og komið aftur um 20:30. Hún hafði samband við lögregluna sem kom og skoðaði verksummerki. Lögreglan staðfesti í samtali við blaðamann að þetta væri í annað skipti sem sambærilegt atvik hefði átt sér stað á Akureyri, í apríl sl. hefði lögreglan fengið tilkynningu um mjög svipaða aðkomu.

Á gólfinu sáust fótspor eftir barnastígvél sem benda til þess að ungt barn hafi verið að verki. Einnig fundust á eldhúsbekknum svartir fingravettlingar með loði í kvennmannsstærð.

Halla furðar sig á málinu og segir frá því á Facebooksíðu sinni og biður Akureyringa um að vera vakandi yfir því ef barn er í stígvélum og fötum með matarleyfum. Hún getur sér þess til að um fleiri en eitt barn hafi verið að ræða.

Hér má sjá myndir sem teknar voru í íbúðinni.

Allt með kyrrum kjörum á Bíladögum

Engin útköll hafa verið hjá lögreglu í kvöld vegna bíladaga og aðeins einn tekinn fyrir of hraðan akstur nú í kvöld. Það er mat þeirra sem fylgst hafa með bíladögum í kvöld að ... Lesa »

Ný röntgentæki á FSA

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri við Eyrarlandsveg í gær þar sem hann ræddi við starfsfólk og kynnti sér starfsemina. Hann kynnti sér ... Lesa »

Mikill hraðakstur umhverfis Akureyri

Umferð hefur verið að þyngjast í kringum Akureyri í dag og á eftir að þyngjast enn að sögn lögreglunnar á Akureyri sem er með mikið umferðareftirlit í kringum bæinn og hafa nú ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Falsaði undirskrift mömmu og ömmu

Ungur maður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið sakfelldur fyrir skjalafals með því að hafa falsað nöfn mömmu sinnar og ömmu sem sjálfskuldaábyrgðaraðila þegar gefið var ... Lesa »

Vill að Íbúðalánasjóður geri könnun

Ekki er rétt sem fram kom í Akureyri vikublaði í síðustu viku í frétt um Íbúðalánasjóð að hótelstjórinn í Reynihlíð hafi ætlað að kaupa hús í Reykjahlíðarþorpi til að ... Lesa »

Skáld í Kakalaskála í Skagafirði

Nú er sumardagskráin á Sturlungaslóð í Skagafirði að rúlla af stað. Margt er í boði og nú í júní er leikþátturinn Skáld og gönguferð þar sem horft verður yfir ríki ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Akureyrarbær/Sjónlistamiðstöðin svonefnda, skrifar listelskur bæjarbúi sem sendi blaðinu bréf. Í bréfinu segir að fáir viti í reynd fyrir hvað Sjónlistamiðstöðin standi, ... Lesa »

Slökkviliðið. Mynd úr safni

20 milljóna afgangur

„Nei, ég vil ekki tjá mig neitt um þetta mál,“ segir Þorbjörn Guðrúnarson slökkviliðsstjóri á Akureyri en gengið var frá starfslokasamningi hans í síðustu viku. Samskiptavandi ... Lesa »

Fundur Alþýðufylkingar í kvöld

Alþýðufylkingin boðar til kynningar- og umræðufundar á Akureyri fimmtudagskvöldið 13. júní kl. 20. Fundurinn verður haldinn í Sontasalnum, Aðalstræti 54. Þorvaldur Þorvaldsson, ... Lesa »

Fetað í fótspor danska norðurljósaleiðangursins

Hvað uppgötvuðu danskir leiðangursmenn sem komu til Akureyrar til að rannsaka norðurljós árið 1899-1900? Veistu þú hver Harald Moltke og hvert hlutverk hans var í leiðangrinum? Svör ... Lesa »

Ekkert heitt vatn í Víðilundi

Vegna óvæntra atvika við brunnavinnu þurfti að taka heita vatnið af á stærra svæði en upphaflega reiknað var með. Auk svæðisins í Lundarhverfi sem áður hafði verið auglýst ... Lesa »

Nýr ráðherra hlynntur Nubo?

Breska blaðið Financial Times veltir því upp í grein á heimasíðu sinni hvort ráðherraskipti á Íslandi muni þýða aukinn framgang hjá Kínverjanum Huang Nubo, en hann hefur sótt um land ... Lesa »

Enn ekki búið að tala við Bismarck

Lögreglan á Húsavík hefur enn ekki rætt við Julius von Bismarck, þýska listamanninn sem grunaður er um að vera viðriðinn náttúruspjöll sem unnin voru í Mývatnssveit í vor. Þetta ... Lesa »

Sólarsellur og vindrafstöð knýja klósett við Hverfjall

Í undirbúningi er deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir fyrir salernisaðstöðu og bílastæði við uppgönguna á Hverfjall/fell. Stefnt er að því að framkvæmdin verði einkar ... Lesa »

Ferðaþjónustan hér eins og olían fyrir Norðmenn

Í kvöld kl. 20 verður myndin In memoriam? eftir Ómar Ragnarsson sýnd í Hofi en myndin var gerð haustið 2003 fyrir erlendan markað og hefur ekki verið sýnd hérlendis fyrr. Ómar verður ... Lesa »

Norðurorka

Langþreyttir vegna vatnsmengunar

Til snarpra umræðna kom á fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á fundi í fyrradag en þar hafa um 600 íbúar sveitarfélagsins mátt sjóða neysluvatn síðan í leysingum í ... Lesa »

N4 fær tíu milljóna byggðagreiðslu

Sjónvarpsmiðillinn N4 á Akureyri fær tíu milljónir króna af opinberu fé til að vinna að bættri ímynd NA-lands. Þorvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri N4, staðfestir þetta. „Það ... Lesa »

Björn Þorláksson

Að leggja niður náttúruvernd

Sú hugmynd Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra Framsóknarflokksins að leggja niður umhverfisráðuneytið lýsir fullkominni firringu og vanvirðingu gagnvart einu stærsta verkefni ... Lesa »

Útskrift hjá Símey og Keili

Þann 6.júní útskrifaði SÍMEY um 100 þátttakendur sem lokið höfðu námsleiðum á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námsleiðirnar sem nemendur voru að ljúka voru ... Lesa »

Ákveðið að halda áfram leit að minkaskyttunni

Stöðufundi hjá aðgerðastjórn leitarinnar að minkaskyttunni í og við Hjaltadalsá var að ljúka. Ákveðið hefur verið að halda leitinni áfram, a.m.k. fram á kvöld og verið er að ... Lesa »

Blóðgjafadagurinn er á morgun

Blóðgjafafélag Íslands og Blóðbankinn halda alþjóða blóðgjafadaginn hátíðlegan á morgun, fimmtudaginn 13. júní. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli á blóðgjöfum og því ... Lesa »

Verðlaunuð fyrir að kenna fötluðu fólki á skíði

Beth Fox sem kennt hefur á námskeiðum fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli undanfarin ár fékk á dögunum Cobb Partnership verðlaunin sem Fullbright stofnunin í Bandaríkjunum veitir. ... Lesa »

Síðasti séns á að sjá Stöngin inn

Sýningin Stöngin inn sem leikfélögin í Fjallabyggð settu upp í vetur var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013. Nú gefst Norðlendingum sem misstu af sýningunni í vetur eitt ... Lesa »

Kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadal

Þriðja barn Álfhildar Leifsdóttur og Sölva Sigurðssonar sem búsett eru á Sauðárkróki kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum í morgun kl. 7:17. Frá þessu segir á vefnum ... Lesa »

Kundalini jóga – leið til að takast á við streitu á heildrænan hátt

Við íslendingar erum þekktir fyrir að vera dugleg þjóð og má nefna sem dæmi að orðið “duglegur” er ekki til í rómönskum málum eins og ítölsku og frönsku. Ef eitthvað er þá ... Lesa »

Skoða meira