Stórsigur fyrir umhverfisvernd í landinu

Stórsigur fyrir umhverfisvernd í landinu

Áætluð lagnaleið Blöndulínu

Hjónin Ólafur Valsson og Sif Konráðsdóttir íbúar á Hólum í Öxnadal fagna því nú að í gær úrskurðaði umhverfis- og auðlindaráðherra um að kerfisáætlun Landsnets skuli sæta umhverfismati. Ógilti ráðherra þar með niðurstöðu Skipulagsstofnunar frá fyrra ári í kærumáli hjónanna.

Landsnet hefur fram til þessa ekki látið gera umhverfismat á kerfisáætlunum sínum og hefur raunar alfarið hafnað slíkri kröfu. Það kærðu hjónin Ólafur og Sif en Landsnet hefur kynnt hugmynd um að leggja í Öxnadalnum öfluga flutningslínu, Blöndulínu 3, sem fyrsta áfanga í áformum fyrirtækisins um hringtenginu virkjana um allt land.

Niðurstaða ráðuneytisins hefur það í för með sér að kerfisáætlun Landsnets hefur ekkert gildi gagnvart sveitarfélögum og almenningi fyrr en lögformlegt umhverfismat hefur farið fram á henni.

Ólafur og Sif fagna þessari niðurstöðu og telja hana stórsigur fyrir umhverfisvernd í landinu. „Ráðuneytið skýrði lög með hliðsjón af því markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum jafnramt því að stuðla að því að við áætlanagerð sé tekið tillit til umverfissjónarmiða. Á sama tíma vekur það umhugsun að almennir borgarar þurfi að draga öflugt fyrirtæki sem fer með opinbert vald og nýtur sérleyfis, fyrir ráðuneyti umhverfismála til að fá slíka niðurstöðu. Þá er það sorgleg staðreynd að Landsnet hafi fram að þessu ekki séð sóma sinn í að láta umhverfismat fara fram á áætlunum sínum. Hefur fyrirtækið einnig kerfisbundið skirrst við að láta gera greiningu á þeim valkosti að leggja raflínur í jarðstreng þar sem það á við. Slíkar aðstæður telja kærendur að séu m.a. fyrir hendi í Öxnadal, þar sem háspennumöstur og línuvegir myndu hafa mikil sjónræn áhrif á náttúruverndarsvæði, við bæinn Hraun og Hraundranga,“ segir í tilkynningu frá hjónunum.

Úrskurðinn telja kærendur sýna að meta verði heildstætt allar áætlanir um framkvæmdir í flutningskerfi raforku. Við það mat hlýtur trúverðugur samanburður að fara fram á þeirri leið að leggja jarðstrengi þar sem það á við á flutningsleiðinni.

Hér má sjá úrskurð umhverfis- og auðlindaráðherra í heild sinni

 

Portmarkaður við Flóru

Nú stendur yfir portmarkaður sunnan við verslunina Flóru í Hafnarstræti 90 og það er ekki annað að sjá en þar sé mikil stemmning. Á markaðnum eru húsmunir, fatnaður, tónlist, bækur, ... Lesa »

Afmælishátíð ADHD samtakanna

ADHD samtökin fagna 25 ára afmæli um þessar mundir og efna af því tilefni til afmælishátíðar á sunnudaginn, 9. júní kl. 14 - 17. Hátíðin fer fram að Hömrum og verður þar boðið ... Lesa »

Buslað í blíðunni

Akureyringar hafa notið veðurblíðunnar nú í upphafi sumars sem skall á með látum. Veðurguðirnir virðast hafa ákveðið að hraðspóla yfir vorið og tré og runnar hafa sprunið út í ... Lesa »

Enn þarf að sjóða vatn á Svalbarðsströnd

Íbúar í Svalbarðsstrandarhreppi þurfa ennþá að sjóða allt neysluvatn og óvissa er um hvenær lindirnar hreinsa sig eftir mengun vegna yfirborðsvatns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ... Lesa »

Heyrst hefur…

Heyrst hefur að sögulegt kvenlægt atgervi hafi komið saman undir einu þaki í partýi um helgina í húsi Ragnheiðar Skúladóttur, leikhússtjóra á Akureyri. Ragnheiður blés til ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá norðlenskir fjölmiðlar en engir þeirra greindu frá eða voru viðstaddir þegar Sjúkrasjóður Verkstjórasambands Ísland afhenti FSA stóra gjöf í formi sérstaks rúms. Afhendingin ... Lesa »

Tekjur bæjarins 200 milljónum undir áætlun fyrstu fimm mánuði ársins

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í vikunni voru lagðar fram forsendur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2014. Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi A-lista greiddi atkvæði gegn því ... Lesa »

Frumleg útskriftargjöf frá kennurum

Kennararnir í framhaldsskólanum í bænum Hadsel í norður-Noregi gáfu nemendum sínum skemmtilega og frumlega útskrifargjöf í vor. Þeir bjuggu til þetta myndband við lagið Hall of Fame en ... Lesa »

Hlynur Hallson opnar sýningu

Hlynur Hallsson opnar sýninguna Sýning - Ausstellung - Exhibition í Kartöflugeymslunni efst í Listagilinu á Akureyri laugardaginn 8. júní kl. 15. Sýningin er nokkurskonar yfirlitssýning á ... Lesa »

Minningar um vonda kennslu

Stundum er haft á orði að menntun sé það sem situr eftir þegar maður er búinn að gleyma öllu sem manni var kennt. Ef ég á að heimfæra þetta upp á nám mitt í stærðfræði við ... Lesa »

Flutt eftir átta mánuði

Framkvæmdir eru hafnar við gamla Húsmæðraskólann við Þórunnarstræti. Húsinu verður nú breytt í skammtímavistun fyrir fatlaðra. Vinnan fer að sögn Odds Helga Halldórssonar, formann ... Lesa »

Björn Þorláksson

SUMAR!

Haft hefur verið á orði að veðrið sé að miklu leyti hugarástand. Þá er átt við að andlegt jafnvægi okkar ráði nokkru um það hvort við látum veður fara í taugarnar okkar eða ... Lesa »

Hús vikunnar: Fjósið - íþróttahús Menntaskólans á Akureyri.

Í síðasta pistli fjallaði ég um Gamla Skóla- elsta hús Menntaskólans á Akureyri og eins konar táknmynd hans og nokkuð rökrétt í beinu framhaldi að fjalla um Fjósið. Á lóð ... Lesa »

Óvissa um stöðu Starfsendurhæfingar Norðurlands

Vinnumarkaðsráð Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra hefur sent frá sér ályktun þar sem heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar eru hvattir til að flýta endurskoðun á úttekt á ... Lesa »

Ríkisolíufélagið hafi höfuðstöðvar á Akureyri

Í kjölfar fundar í bæjarráði Akureyrar í morgun hvetur bæjarráð ríkisstjórnina til að sjá til þess að höfuðstöðvar nýs ríkisolíufélags verði á Akureyri. Þetta kemur fram í ... Lesa »

Popupmarkaður haldinn á Akureyri

Pop up markaður svokallaður verður opnaður í dag og stendur fram á sunnudag í Europrishúsinu að Baldursnesi 8, Akureyri. Hugmyndin er sprottin af markaði sem hefur verið haldinn reglulega ... Lesa »

Bismarck neitar sök

Eftir því sem fram kemur á visir.is neitar Julius von Bismarck að vera sá náttúruníðingur sem leitað hefur verið að síðustu vikur. Hlynur Hallsson myndlistarmaður rakst á myndir ... Lesa »

Leynd yfir starfslokasamningi við fráfarandi slökkviliðsstjóra

„Ég vill nota tækifærið og þakka Þorbirni fyrir samstarfið og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Nú tekur við að auglýsa starf slökkviliðsstjóra og vonandi verður búið að ... Lesa »

Hótelstjóri segir erfitt að skipta við „drumbana“ hjá Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður fær á hverjum degi u.þ.b. 10 fyrirspurnir frá einstaklingum sem vilja kaupa eignir Íbúðalánasjóðsins. Kaupendur fá hins vegar allir þau svör að ekki sé hægt að ... Lesa »

Segir sjálfsagða kröfu að byggðalínan fari í jörð

Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi á Akureyri segir vegna harðra viðbragða Landsnets við svæðisskipulagi Eyjafjarðar að hann sé þeirrar skoðunar að raflínur séu sjálfsagður og ... Lesa »

Kynferðislegt áreiti innan FSA

Nokkur spenna er meðal starfsmanna Sjúkrahússins á Akureyri eftir að framkvæmdastjórn skrifaði pistil og birti á innra vefsvæði spítalans. Þar er farið þungum orðum um ónafngreinda ... Lesa »

Náttúruníðingur fundinn?

Hlynur Hallsson, myndlistarmaður á Akureyri, telur sig hafa fundið þann sem framdi náttúruspjöll í Mývatnssveit á dögunum. Hlynur var á sýningarölti í Berlín þegar hann rakst á ... Lesa »

Bát bjargað með nýjum björgunarbát Grímseyinga

Á sjómannadagshátíðinni um sl. helgi tók björgunarsveitin Sæþór í Grímsey í notkun nýjan björgunarbát. Ekki liðu nema 3 dagar frá því að báturinn var tekinn í notkun þar til ... Lesa »

Slökkviliðið. Mynd úr safni

Slökkviðlismenn fagna brotthvarfi slökkviliðsstjóra

Anton Carrasco, trúnaðarmaður slökkviliðsmanna á Akureyri, fagnar því að lausn sé að nást á vandamálum sem staðið hafa yfir misserum saman innan slökkviliðsins. Tilkynnt var á ... Lesa »

Slökkviliðsstjórinn á Akureyri lætur af störfum

Þorbjörn Guðrúnarson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, hefur látið af störfum, þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Akureyrarbær sendi rétt í þessu. Fram kemur að bærinn þakki ... Lesa »

Skoða meira