Eins og fram hefur komið verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Aðstandendur vilja kom því á framfæri að þeir sem þurfa aðstoð geta hringt í síma 537 9050 milli kl. 11:00 og 13:00 á mánudegi, þriðjudegi eða miðvikudegi fyrir 5. desember. Í símtalinu verður bókað viðtal þar sem fyllt er út umsókn og láta skal fylgja staðgreiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handanna á milli.
Jólaaðstoðin hófst sl. mánudag, 18. nóvember.
Þeir sem fá úthlutun sækja kortin sín miðvikudaginn 11. desember og fimmtudaginn 12. desember kl. 13-16. Auk þess er fatamarkaður og jólagjafir fyrir umsækjendur og fjölskyldur þeirra opinn 14. desember hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b.
Átakið nær frá Grenivík í austri að Siglufirði í vestri.
-BÞ



