Í haust var um 79.000 fjár slátrað á sláturhúsi Norðlenska á Húsavík en fleira fé hefur ekki verið slátrað þar síðan 2007 og meðalvigt dilka hefur aldrei verið hærri þar á bæ. Frá þessu segir á vef Norðlenska.
„Að lokinni svona vertíð er ástæða til að þakka starfsfólki, verktökum sem að þessu koma og ekki síst bændum fyrir góð samkipti, því að sjálfsögðu reynir á dugnað og lipurð hjá öllum til að vel gangi,” segir Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri Norðlenska á Húsavík.
Sigmundur er ánægður með sláturtíðina og segir kjögæði meiri og fitu í kjötinu minni í ár en í fyrra. Meðalvigt var 16,52 kg á móti 16,28 kg árið 2012.


