Það hafa verið sönn forréttindi að fylgjast með skrifum ungs fólks síðustu vikur, bæði hér í þessu blaði, á vefnum akureyrivikublad.is sem og í fleiri fjölmiðlum. Hafi einhver haldið að unga fólkið okkar sé ófært um að fjalla í riti og ræðu um ýmis samtímamálefni – „þetta er allt að fara til helvítis mantran“ – birtist manni síðustu daga vel hve vandræðalegur fordómur birtist í slíkri sýn.
Með milligöngu og aðstoð Brynjars Karls Óttarssonar, kennara við Giljaskóla, hefur þetta blað birt um nokkurt skeið greinar frá nemendum á grunnskólastigi sem hafa vakið athygli. Þar má síðast nefna grein um áhrif Vaðlaheiðarganga og grein um framkomu fólks við starfsfólk í stórmörkuðum. Ekkert útilokar að nemendur fleiri grunnskóla og eða framhaldsskóla fái inni með skoðanir sínar og samfélagsmeiningar á síðum blaðsins. Fyrir hefur komið að ungmenni hafa samband við ritstjóra og vilja segja eitthvað en skortir kjark þar sem textameðferð eða strúktúr greina sé ábótavant. Í slíkum tilvikum hjálpar blaðið fólki, ungu sem öldnu, að forma textann uns niðurstaðan verður til sóma. Að því gefnu að umræðuefnið fylli ákveðnar kröfur. Það er með öðrum orðum ósk blaðsins að lýðræðisleg skoðanaskipti kvikni sem víðast og fari sem víðast.
Nú síðast steig nemi í Menntaskólanum á Akureyri fram og reis upp gegn meiðandi ummælum og framkomu MORFÍS-hóps. Ekki þurfti sá nemandi neina aðstoð. Nemandinn ákvað að skrifa grein og birta á akureyrivikublad.is, grein í kjölfar þess að BB hafi birt frétt um niðrandi framkomu annars skóla í MORFÍS ræðukeppninni í garð nemandans.
„Þetta veldur því að ég vill biðja allar stelpur og konur að hugsa hvað þær leyfa öðrum að segja um sig og við sig … Stelpur, nú er ekki seinna vænna en að við látum til okkar taka. Stöndum upp fyrir sjálfum okkur, því ef við gerum það ekki hver gerir það þá?“
Svo skrifaði Eyrún Björg Guðmundsdóttir nemi við MA á vefnum akureyrivkublad.is.
Liðsstjóri ræðuliðs MÍ, sem lét ósæmileg orð falla um mótherja í MORFÍs ræðukeppni, hefur nú sagt af sér sem trúnaðarmaður nemenda í skólaráði og skólanefnd menntaskólans. Hann fær tækifæri til að læra af reynslunni. Orð skipta máli. Að svara orðum með orðum skiptir máli.
Ungmenna Íslands er framtíðin. Það er löngu tímabært að hvetja þau til að hafa áhrif í samfélaginu. Það er ekkert að óttast þótt menning taki breytingum m.a. vegna rafrænu byltingarinnar. Börn verða að jafnaði betri og hæfari en foreldrar þeirra. Út á það gengur þróunarkenningin.
Björn Þorláksson




























