Eik Haraldsdóttir er Jólastjarnan 2013. Hún fær að koma fram með Björgvini Halldórssyni og mörgum öðrum þekktum stórstjörnum fyrir jólin.
Akureyrsk stúlka í 6. bekk, Eik Haraldsdóttir, hampaði í síðustu viku sigurlaunum í Lundarskóla þegar Gunnar Helgason leikari tilkynnti henni fyrir framan starfsfólk og nemendur að hún hefði sigrað í söngkeppninni „Jólastjarna Björgvins“. Leitin að stjörnunni er kennd við Björgvin Halldórsson og fær Eik að koma fram í desember með öðrum (og fram að þessu þekktari) söngstjörnum í tvígang á stóru sviði.
„Ég trúði þessu ekki alveg strax, en svo varð ég bæði hissa og ánægð því ég bjóst ekki við að vinna,“ segir Eik. Tíðindin komu henni tímabundið úr jafnvægi en svo söng hún eins og ekkert hefði í skorist fyrir allan skólann.
„Ég tók þátt í Jólastjörnunni í fyrra en komst ekki þá áfram og var strax ákveðin að taka þátt aftur,“ segir Eik.
Það mátti þó litlu muna að hún missti af tækifærinu í ár, því auglýsingin fór næstum framhjá fjölskyldunni og var myndband sem stóra systir tók upp af söng hennar sent inn á síðustu stundu. „Ég reyndi bara að gera mitt besta,“ segir Eik, sem söng sig inn í hjörtu dómnefndar með laginu Þar sem allt grær úr söngleiknum Litlu hryllingsbúðinni.
Haraldur Þór Eglsson, minjasafnvörður á Akureyri og faðir Eikar, segir að fjölskyldan hafi orðið bæði hissa og glöð þegar kom í ljós að unga stúlkan hafði komist í úrvalshóp 10 stelpna af 500 þátttakendum. „Það var í sjálfu sér mikill sigur,“ segir Haraldur.
Þá þurfti Eik að velja sér jólalag með íslenskum texta en jafnframt átti hún að læra íslenskan texta við lagið Ben eftir Michael Jackson og aðeins 4 dagar til stefnu. Eik var hins vegar alveg ákveðin í að velja „öðruvísi“ lag og varð Majonesjól með Bogomil Font fyrir valinu. Svo var sungið alla daga fram að áheyrnarprufunni. Í henni skemmti Eik sér konunglega og fannst það bara lítið mál að standa fyrir framan atvinnusöngvara og mikið stuð að syngja með með leikaranum Pálma Sigurhjartarsyni.
„Ég bjóst ekki við að vinna, vonaði það en hugsaði samt ekki mikið um það. Mig langaði bara að taka þátt í keppninni. Þetta verður bara ævintýri. Ég fæ að prófa að syngja á risastóru sviði með öllum stjörnunum fyrir framan fullt af fólki. Tvisvar,“ segir Eik.
Eik segist ætla að kaupa sér dagbók til að skrifa niður ævintýrið „svo hún muni það alla ævi“.
En bannski er ævintýrið bara rétt að hefjast?
-BÞ


