Vorið 2011 ákvað Akureyrarbær að bjóða út rekstur kaffihúss í Lystigarðinum. Umsóknir voru undir nafnleynd og bárust alls fjögur tilboð í reksturinn. Tilboði frá einkahlutafélagi í eigu okkar undirritaðra var tekið. Fasteignir Akureyrar (FA) óskuðu í sínu útboði eftir tilboðum í leigu á fermetra. Það er hversu háa leigu tilboðsgjafar voru tilbúnir að bjóða í hvern fm í húsinu. Okkar tilboð hljómaði upp á 2.784kr/fm. Það er samtals 417.600kr í mánaðarleigu. Í framhaldinu var hafist handa við að hanna húsið. Tilboð til byggingaraðila voru síðan opnuð í desember 2011. Þá kom í ljós að tilboðin voru hærri en reiknað var með í kostnaðaráætlun fyrir verkið. Það var sem sagt búið að hanna of dýrt hús. Skilaboðin sem við fengum hjá FA í framhaldinu voru að það yrði ekki hægt að fara í verkefnið nema að við hækkuðum við okkur leiguna og ýmislegt annað yrði sparað sem átti að vera hluti af leigunni. Sumt af því sem FA sparaði við framkvæmdina lenti síðar í ferlinu sem kostnaður á okkur leigutakana. Á þessum tíma var búið að setja rúmar 5 milljónir í hönnun hússins.
Þarna var komið að einum erfiðasta tímapunktinum í þessu ferli. Það er hvort við ættum að taka á okkur auknar byrðar í gegnum leiguna eða hætta við allt saman. Bærinn var ekki tilbúinn að standa við sinn hluta sem var að reisa hús sem við myndum leigja fyrir þann pening sem við höfðum boðið á sínum tíma. FA voru greinilega til í að hætta við verkið þegar þarna var komið og kostnaður af framkvæmdinni yrði þar með afskrifaður eða rúmar 5 milljónir sem þá þegar var búið að setja í hönnun hússins. Á þessum tímapunkti gerðum við okkar stærstu mistök í öllu þessu ferli, það er að halda áfram. FA ætluðu greinilega ekki að axla neina ábyrgð á sínum þætti sem var að koma upp húsi sem leigugreiðslur upp á rúmlega 400.000kr stæðu undir. Sú leiga er há í öllu samhengi við húsaleigu á Akureyri á sama tíma. Í framhaldinu af þessu hækkaði leigan mikið þannig að í dag er hún tæplega 600.000kr á mánuði eða um 3.300kr á fm.
Það er einnig ljóst að rekstraráætlunin stóðst ekki heldur miðað við þær væntingar sem voru uppi varðandi sölu á veitingum til erlendra ferðamanna. Þá kannski sérstaklega af farþegum erlendra skemmtiferðaskipa sem sækja bæinn heim. Það sem var aftur jákvætt er hversu vel heimamenn hafa sótt kaffihúsið og Lystigarðinn. Það hefur verið langmikilvægasti viðskiptamannahópurinn. Einnig var ánægjulegt að heyra að heimamenn sem höfðu ekki sótt garðinn heim jafnvel í áratugi voru farnir að mæta í hann með tilkomu kaffihússins. Við teljum algjörlega ljóst að húsið hefur styrkt garðinn í sessi sem einn helsti viðkomustaður ferðamanna sem sækja Akureyri heim. Aldrei áður hefur verið rekin veitingasala í Lystigarðinum en í útboðsgögnum er sagt að um 100.000 gestir sæki garðinn heim á hverju ári. Í dag er ljóst að sú tala er ekki rétt. Við unnum allar okkar áætlanir miðað við þær aðsóknartölur. Þetta hefur vissulega haft áhrif á afkomuna.
Í samskiptum okkar við bæinn var talað um að göngustígur í gegnum garðinn yrði ruddur og aðgengi að húsinu yrði greitt árið um kring. Snjómokstri og hálkuvörnum var illa sinnt af bæjarins hálfu, aðgengi að húsinu varð takmarkað og erfitt sem aftur kom niður á nýtingu hússins og aðgengi gesta að því og skapaði það mikil vandamál í rekstrinum.
Í lok september höfðu undirritaðir samband við FA og vildum við fara í gegnum þá stöðu sem væri komin upp. Við áttum fund með framkvæmdastjóra FA og fórum í gegnum þessi mál, þar á meðal það leiguverð sem væri á húsinu. Ekki var annað að heyra á framkvæmdastjóranum að hann hefði fullan skilning á málinu. Í kjölfarið ætlaði hann að ræða við formann stjórnar FA og leggja fram hugmyndir fyrir stjórn FA. Okkar skilningur var síðan að framkvæmdastjórinn myndi hafa samband við okkur um framhaldið en heill mánuður leið. Það var ekki fyrr en örfáum dögum fyrir stjórnarfund í stjórn FA 1.nóvember síðastliðinn að hann hafði samband og óskaði eftir punktum frá okkur vegna málsins, það átti ekki að vera formlegt bréf. Við urðum að sjálfsögðu við þeirri beiðni og sendum framkvæmdastjóra FA punktana í tölvupósti. Okkur til undrunar virðist þessi tölvupóstur vera orðin undirstaðan í frétt Akureyri vikublaðs um málið. Málefni þar sem leigutaki hjá FA á í samningum við félagið um sín leigumál.
Við viljum árétta það hér að við höfum hvorki greitt okkur krónu í arð né laun í þessu ferli. Hins vegar berum við umtalsvert tap eða væntanlega um 12-15 milljónir af þessu ævintýri.
Okkar ósk var að klára þetta með þeim hætti að við stæðum í skilum við okkar birgja og engir stæðu eftir með ógreidda reikninga og bregðast þannig við áður en í óefni væri komið.
Að einhverju leyti má kannski segja að þetta sé frekar óvenjuleg leið miðað við hvað hefur verið hefðbundið á Íslandi. Í stuttu máli við berum tjónið sjálfir. Aðrir munu ekki bera skaða af málinu.
Trúnaðarbrestur af hálfu bæjarins gerði það að verkum að við eigum engan annan kost en að taka skellinn. En húsið er risið og óskum við væntanlegum rekstraraðilum velfarnaðar í rekstrinum. Jafnframt þökkum við viðskiptavinum, gestum og þeim sem unnu með okkur fyrir frábær kynni á þessum tíma í Kaffi Björk.
Njáll Trausti Friðbertsson, viðskiptafræðingur
Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður


