Njáll Trausti Friðbertsson og Sigurður Guðmundsson, rekstraraðilar kaffihússins í Lystigarðinum, segja í aðsendri grein í blaði vikunnar að þegar tilboð til byggingaraðila voru opnuð í desember árið 2011 hafi komið í ljós að tilboðin voru hærri en reiknað var með í kostnaðaráætlun fyrir verkið. Þá hafi verið búið að hanna of dýrt hús.
„Á þessum tímapunkti gerðum við okkar stærstu mistök í öllu þessu ferli, það er að halda áfram. FA [Fasteignir Akureyrar] ætluðu greinilega ekki að axla neina ábyrgð á sínum þætti sem var að koma upp húsi sem leigugreiðslur upp á rúmlega 400.000kr stæðu undir. Sú leiga er há í öllu samhengi við húsaleigu á Akureyri á sama tíma. Í framhaldinu af þessu hækkaði leigan mikið þannig að í dag er hún tæplega 600.000 kr. á mánuði eða um 3.300 kr. á m2,“ segir í grein Njáls Trausta og Sigurðar.
„Trúnaðarbrestur af hálfu bæjarins gerði það að verkum að við eigum engan annan kost en að taka skellinn,“ segja þeir.
-BÞ


