Þótt verulegar takmarkanir hafi verið á fjölda veiðidaga á rjúpu í vetur segja veiðimenn að veiðin hafi gengið vel. Má því fullyrða að rjúpur verði víða á jólaborðum í ár. Í eina tíð þóttu rjúpur fátækramatur en seinni ár hefur öldin verið önnur. Sölubönn hafa ekki komið í veg fyrir svartan markað þar sem á tímum góðærisins bárust fregnir af því að hver rjúpa hefði verið seld á tugi þúsunda, svo mikil var sóknin í villibráðina og varð ígildi stöðutákns að hafa rjúpu á jólaborðinu þegar minnst var til af henni. Þetta var á þeim tíma sem sumir Íslendingar snæddu gull í veislum.
Veiðimönnum sem Akureyri vikublað hefur rætt við telja að hófsemi sé vaxandi dyggð meðal rjúpnaveiðimanna. Undantekningar virðast þó frá þessu. Á facebook hefur farið fram mikil umræða þar sem staðhæft er að einn og sami veiðimaður hafi skotið 190 rjúpur á tveimur helgum í Bárðardal.
„Ef þetta er satt þá er svona náttúrlega svartur blettur á annars að ég tel batnandi veiðimenningu,“ segir Þorsteinn Guðbjörnsson rjúpnabani frá Dalvík. Haraldur Sigurjónsson, Húsvíkingur og veiðifélagi Þorsteins, tekur í svipaðan streng: „Hér þurfa veiðimenn að veita hver öðrum aðhald með því að stíga fram og láta vita af svona ósvinnu.
-BÞ


