13 starfsmönnum Hvamms í Hrísey var sagt upp störfum í gær og taka þær gildi um næstu mánaðamót. Að öllu óbreyttu missa starfsmennirnir vinnuna 1. júní nk. Starfsmennirnir vinna við landvinnslu. Eins og akv.is greindi frá í gær er ástæðan súað ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir fyrirtækið eins og staðan er núna.
Bæjarráð Akureyrarkaupsstaðar samþykkti bókun á fundi í morgun að „bæjarráð Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum af því ótrygga atvinnuástandi sem íbúar Hríseyjar búa við. Mikilvægt er að grípa til bráðaaðgerða til að bregðast við því áfalli að Útgerðarfélagið Hvammur hafi sagt upp öllu sínu starfsfólki.“
Þegar Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-listans er spurður að því hvaða aðgerðir bæjarráð er að tala um og hver á að fara í þær aðgerðir segist hann ekki vita það. „Stutta svarið er það að ég veit það ekki. Langa svarið er að við munum fara yfir þetta mál með Hreini Þóri Haukssyni, verkefnastjóra atvinnumála hjá bænum.“
„Við munum sýna móralskan stuðning með bæjarbúum í Hrísey og reyna að fá þingmenn kjördæmisins og ráðamenn til að leggjast á árarnar með okkur. Einnig þurfum við að skoða það hvernig við getum bætt stöðu atvinnumála í Hrísey og hvað við nákvæmlega getum gert til að auka fjölbreytnina.“ Bætir Oddur Helgi við.
Um 170 manns búa í Hrísey. Hvammur er stærsti vinnuveitandinn í eynni.



























