Svokölluðu Dirty nigth, sem fram átti að fara í Sjallanum um helgina hefur verið aflýst vegna athugasemda sem forsvarsmönnum Sjallans bárust vegna viðburðarins. Meðal annars gerði Jafnréttisstofa athugasemdir við viðburðinn og beindi þeirri ábendingu til Sjallans að auglýsingar um viðburðinn gætu verið brot á 29. grein jafnréttislaga auk þess að vera í andstöðu við markmið laganna. „Við fengum ábendingar um viðburðinn og sendum í kjölfarið ábendingu til framkvæmdastjóra Sjallans,“ segir Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur á Jafnréttisstofu, og bætir því við að forsvarsmenn Sjallans hafi sýnt samfélagslega ábyrgð í janúar sl. þegar þeir ákváðu að hætta við viðburð með sama nafni og því hafi verið skorað á þá að standa við þá samfélagslegu ábyrgð.
Í auglýsingum sem birtar voru á Facebook kom fram að meðal þess sem boðið yrði upp á væri undirfatasýning, dansbúr og glaðningur fyrir leðurklæddar konur.
Einn af forsvarsmönnum Sjallans sem blaðamaður ræddi við segir að ákvörðunin um að hætta við viðburðin hafi verið einföld í þeirra huga. „Við misskildum hvernig þetta kvöld ætti að vera og um leið og við sáum hvað þetta væri þá ákváðum við að bakka út úr þessu. Við sjáum að fólk er mjög á móti svona viðburðum og við höfum enga þörf fyrir að berjast á móti jafnrétti svo þegar við sáum hvert þetta var að stefna var það ekki spurning í okkar huga að hætta við þetta.“
-SBS



