Mikill urgur er í samfélaginu með að kirkjan hafi auglýst Hátíð vonar, samkomu sem haldin verður í Laugardalshöll í lok septembermánaðar á sama tíma og fram fara Hinsegin dagar. Einkum er umdeilt að Franklin Graham, sonur trúarleiðtogans Billy Graham, hefur verið kallaður til að flytja ræðu. Franklin þessi Graham hefur ítrekað í fjölmiðlum vestra lýst yfir andúð á lífstíl og hjónavígslum samkynhneigðra.
Á Facebook hafa nokkrir prestar tekið þátt í umræðum. Þar á meðal Sigríður Guðmarsdóttur, prestur í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Sigríður fordæmir komu Grahams og hefur komið athugasemdum áfram.
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur skrifar í athugasemd á Facebook að aðstandendur Hátíðar vonar hafi leitað stíft eftir þátttöku Þjóðkirkjusafnaða. „Ég hafnaði því fyrir hönd Dómkirkjunnar. Vildi fólk í Dómkirkjusöfnuði taka þátt væri það að sjálfsögðu hvers og eins að ákveða fyrir sitt leyti - í frjálsu samfélagi.“
Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju segir á Facebook: „Þetta er alveg vonlaus hátíð og eitthvert ægilegt klúður.“
Annar norðlenskur prestur, Arnaldur Bárðarson, sem þjónaði um skeið í Glerárkirkju varar við alhæfingum um kirkjuna vegna málsins og segir um hugtakið „atvinnuhommahatara“ sem orðið hefur til í fréttaumræðu um Graham þennan: „Við skulum hafa i huga að mjög stórir hópar kristinnar kirkju hafa ekki gengið jafn langt i stuðningi við málefni samkynhneigðra og íslenska kirkjan. Við getum ekki uppnefnt þau öll og slitið okkur úr tengslum við þá stóru fjölskyldu bara vegna þessa eins. Margt hefur áunnist í samstarfi kristinna kirkna um gjörvallan heim með samtali og umræðu og ekki ástæða að ganga hér ofan í skotgrafir fjandskaparins.“
-BÞ



