Um okkur druslurnar

Um okkur druslurnar

Silja og Tinna í Druslugöngunni á Akureyri 2013

Við erum báðar bölvaðir slúðrarar og viðurkennum það af fúsum og frjálsum vilja. Við förum oft með rangt mál og dæmum aðra í kringum okkur á einhverjum gróusögum og pískri. Eitt sem við gerðum (en teljum okkur nú vera búnar að gefa upp á bátinn) var að dæma kynsystur okkar útfrá þeim karlmönnum sem þær hafa kosið að sofa hjá. Einu sinni gerðum við það og notuðum orðið „drusla“ óspart. Svo lærðum við af mistökum okkar, fórum að hugsa út fyrir rammann, öðluðumst gagnrýna hugsun og fórum að velta því fyrir okkur – hvað er að vera drusla?

Við höfum alltaf staðið frammi fyrir þeirri ömurlegu tvífeldni í samfélaginu að ef karlmaður á marga bólfélaga að baki er hann sigurvegari, hann er mikils metinn og oftar en ekki upphafður sem einhver Don Juan hópsins. Hafi stelpur hinsvegar stundað hið sama eru þær dæmdar druslur, ódýrar og tilkippilegar mellur sem hægt er að ganga um eins og almenningssalerni. Skemmtileg dæmi um þessa drusluskömmun og tvífeldna kynlífsmenningu nútímans eru orðin sem við notum um kynfæri hvors annars. Jújú, það eru þessi venjulegu, typpi og píka en ef við förum aðeins ofan í kjölinn á viðurnefnum fyrir litla vininn og vinkonuna fáum við út að typpin fá yfirleitt tignarlegri og reisulegri nöfn eins og reður, limur, herramaðurinn, hrókurinn en píkurnar okkar fá orðskrípi eins og tussa, rotta eða almannagjá. Finnst ykkur þetta ekki tímaskekkja?

Þetta hefur okkur alla tíð fundist fáránlegt. Af hverju á kona að skammast sín eða afsaka sig fyrir að hafa sofið hjá þeim sem hún hefur sofið hjá – hvort sem þeir eru fimm eða fimmtíu? Kannski hafa sumar konur bara sterkari kynhvöt en aðrar, hafa aldrei verið í eða aldrei langað að vera í föstu sambandi eða kannski langar sumar konur bara að njóta kynlífsins í öllu sínu veldi með hverjum þeim sem lítur á þær hýru auga. Og hvað með það?

Nú komum við aftur að þeim grundvallarpunkti að ekkert sem við gerum sem einstaklingar kemur neinum við svo sem. Það kemur engum við hvað við borðum, hvernig við klæðum okkur eða hverjum við sofum hjá – nema okkur sjálfum.

Eru það ekki bara grundvallarréttindi okkar sem ungar, sjálfstæðar konur (og feministar í þokkabót) að fá að ríða þeim sem við viljum ríða? Er það ekki algjörlega okkar mál hverjum við hleypum uppá okkur, undir hvaða kringumstæðum og er það ekki okkar að takast á við afleiðingarnar af því? Við erum ekki að ýta undir neitt svall og saurlífi (öryggið á oddinn og allt það) en hugsum aðeins okkar gang.
Af hverju fá karlmennirnir alltaf bestu bitana, af hverju mega þeir sofa hjá öllum stelpunum inni á baði á B5 án þess að hljóta neinar skammir og verða jafnvel lofaðir fyrir það á meðan við stelpurnar sitjum með sárt ennið, ónýta samvisku og hundrað afsakanir á reiðum höndum eftir einnar nætur gaman með gömlum vin?

Allt snýst þetta um gott kynheilbrigði. Kynheilbrigði snýst ekki um að stunda bara kynlíf með maka. Kynheilbrigði snýst ekki um að hafa töluna þína sem lægsta. Kynheilbrigði fólks snýst um að stunda það kynlíf sem það vill, með aðila sem vill stunda kynlíf með manni, og gera það með viðeigandi vörnum. Það er ekki óheilbrigði að sofa hjá 100 strákum eða 100 stelpum, það er val hvers og eins. Það er hægt að velja að vera á lausu og sofa hjá svo til ókunnugu fólki. Það er líka hægt að velja að stunda bara kynlíf í samböndum með aðila sem maður þekkir og treystir. Hver og einn verður að finna sinn veg og standa við sína sannfæringu.

Það er leiðinlegt þegar stelpur dæma sjálfar sig eftir fjölda stráka sem þær hafa sofið hjá. Við höfum heyrt stelpur tala um að þær séu komnar upp í x tölu og vilji helst ekki að hún fari hærra. Hvern fjandann skiptir þessi tala máli? Það þarf enginn að vita þetta nema stelpan sjálf ef henni svo sýnist. Ef þú vilt ekki stunda einnar nætur gaman þá gerir þú það ekki. Ef þú vilt ekki sofa hjá hverja helgi, þá gerir þú það ekki. Það hefur enga merkingu nema þá að þín sannfæring fyrir þitt kynlíf er svona og hinsegin. Ef við gefum okkur að talan sé x há vegna kynlífs þar sem allir aðilar voru samþykkir, hvað er þá vandamálið?

Hafið þið einhverntímann heyrt karlmenn dæma sjálfa sig út frá þeim fjölda stelpna sem þeir hafa sofið hjá? Er þessu ekki gjörsamlega öfugt farið í þeirra samfélagi? Myndi strákur sem hefur sofið hjá 5 stelpum kannski skammast sín í kringum gaurana sem státa sig af þriggja stafa tölunni?

Með þessum pælingum erum við þó ekki að hvetja fólk til óeðlilegs kynheilbrigðis. Mergur málsins er að ef allir aðilar eru samþykkir, tilbúnir og meðtækilegir þá ætti ekki að vera neitt vandamál, engin skömm eða dómur heldur bara kynlíf í allri sinni dýrð.

Vissulega nota margir kynlíf sem einhverskonar vörn. Vörn gegn sínum eigin tilfinningum, kannski til að fylla upp í eitthvað tómarúm. Það er ekki kynheilbrigði. Það er vandamál sem þarf að koma í veg fyrir með almennilegri kennslu um kynlíf. Það þarf að kenna kynheilbrigði strax í grunnskóla. Það þýðir ekkert að loka augunum á það að ungt fólk stundar kynlíf, af því að ungt fólk stundar kynlíf. Það er staðreynd. Það má aftur á móti kenna þessu unga fólki að stunda ábyrgt kynlíf svo það geti fundið sinn rétta veg og gert það af réttum ástæðum, hverjar sem þær kunna að vera.

Að stunda kynlíf er okkur eðlislægt, okkur bæði til skemmtunar og æxlunar. Fólk getur vissulega verið með mismikla kynhvöt, haft ólíkar skoðanir og siðferði en kynlíf á ekki að vera böl. Kynlíf á að vera frelsandi, eitthvað gott til að njóta með manneskjunni sem er með þér hvort sem ást er í spilinu eða um er að ræða einnar nætur gaman eftir góðan sleik við barinn. Hvorki konur né karlar ættu að neyða sjálfa sig eða hvort annað til kynlífs. Enginn á að nauðga og enginn á að dæma fólkið í kringum sig fyrir hvernig hver og einn kýs að njóta kynlífs.

Við þurfum öll að hætta að dæma hvort annað vegna kynhegðunar okkar.

Ef við stöndum með sjálfum okkur, okkar eigin sannfæringu og treystum sjálfum okkur getum við sofið hjá hverjum sem er. Kannski hefðum við átt að sleppa því, kannski var það ekki gott kynlíf eða kannski var aðilinn ekki sá myndarlegasti í bransanum – en hey, hverjum er ekki sama? Af hverju ert þú að dæma mig?

Það var hans riddari sem reið inn í mína Almannagjá svo þetta er ekki þitt vandamál.

Silja Björk og Tinna

Pistillinn birtist áður á vefritinu Freyjur

Erlendir jógar heimsækja Akureyri

Laugardaginn 17. ágúst heimsækja tveir reyndir erlendir Kundalini jógakennarar Akureyri og halda námskeið fyrir áhugasama. Annars vegar er um að ræða námskeið sem nefnist Heilun á djúpan hátt þar sem ... Lesa »

Sögudagur á Sturlungaslóð

Laugardaginn 17. ágúst verður sögudagurinn á Sturlungaslóð í Skagafirði haldinn í fimmta sinn. Að þessu sinni verður gestum og gangandi boðið í hringferð um Hegranesið undir leiðsögn Þórs Hjaltalíns ... Lesa »

Að sveitamannasið – Töðugjöld í Gamla bænum Laufási

Þegar síðasta tuggan var komin í bagga á klakk á þarfasta þjóninum sem reiddi hana heim í hlöðu, voru og eru víðast hvar í sveitum haldin „Töðugjöld“. Þá fagnaði fólkið og gladdist yfir því að hafa ... Lesa »

Öruggur sigur heimastúlkna gegn HK/Víking

Íslandsmeistarar Þór/KA í knattspyrnu tóku á móti liði HK/Víkings í gær á Þórsvelli og uppskáru þrjú stig. Leiknum lauk með 3-1 sigri Þór/KA og fóru stelpurnar upp í 16 stig við þennan sigur. Það ... Lesa »

Jónas Viðar látinn

Jónas Viðar Sveinsson myndlistarmaður lést aðfararnótt síðastliðins mánudags. Jónas var 51 árs. Jónas var vel þekktur af verkum sínum og rak lengi vel gallerí í Listagilinu en rak gallerí í bakhúsi ... Lesa »

Stórt leikár framundan hjá LA

Á komandi leikári heldur Leikfélag Akureyrar upp á 40 ára starfsafmæli sem atvinnuleikhús en það var á stjórnarfundi þann 8. september 1973 sem ákvörðun var tekin um þessa breytingu. Atvinnuleikhúsið ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Bílvelta á Svalbarðsströnd

Rétt fyrir kl. 16 í dag var tilkynnt um að bíll hefði oltið við Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri voru þrír bílar í röð á leið í norðurátt þegar sá fyrsti ... Lesa »

Hús vikunnar: Alaska, Strandgata 25.

Síðast var ég staddur í Fróðasundi en nú færi ég mig yfir í Strandgötu að valinkunnu húsi sem margir Akureyringar (og kannski sérstaklega Oddeyringar) kannast vel við undir nafninu Alaska. Að venju ... Lesa »

Einn sá allra besti Fiskidagur frá upphafi

Í 13. sinn var fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur á Dalvík um helgina í mildu og góðu veðri. „Það er mál manna að þetta hafi verið einn sá allra besti Fiskidagurinn mikli frá upphafi og öll umferð ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Tvö óhöpp í Öxnadal í nótt

Upp úr kl. 1 í nótt lenti flutningabíll með tengivagn í óhappi rétt við bæinn Steinsstaði í Öxnadalnum. Flutningabíllinn var að mæta öðrum bíl og vék út í kantinn með þeim afleiðingum að tengivagninn ... Lesa »

Um okkur druslurnar

Við erum báðar bölvaðir slúðrarar og viðurkennum það af fúsum og frjálsum vilja. Við förum oft með rangt mál og dæmum aðra í kringum okkur á einhverjum gróusögum og pískri. Eitt sem við gerðum (en ... Lesa »

Heldur hugleiðsla okkur ungum og heilbrigðum?

Margar frásagnir eru til af jógum sem hafa náð háum aldri án þess að bera merki um þennan mikla aldur utan á sér. Enn fleiri eru til um fólk sem finnur nýjan lífsþrótt af því að gera jóga og ... Lesa »

Kári Steinn Karlsson sigraði Jökulárshlaupið

Hið árlega Jökulsárhlaup var haldið í 10. sinn um helgina og boðið var upp á ýmsar vegalengdir fyrir hlaupara. Flestir hlaupa lengstu leiðina, eða frá Dettifoss að Ásbyrgi. Það voru alls 220 keppendur ... Lesa »

Síðasti dagur Handverkshátíðar er í dag

Síðasti dagur Handverkshátíðarinnar er í dag en aðsóknarmet var slegið sl. föstudag og hafa aldrei jafn margir gestir komið á hátíðina á föstudegi. „Ester Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar ... Lesa »

Akureyrarvaka tileinkuð fjölmenningu

Nú styttist í Akureyrarvöku sem er afmælishátíð Akureyrar og haldin er á hverju ári síðustu helgina í ágúst. Þema Akureyrarvöku þetta árið er fjölmenning en fólk af rúmlega sextíu þjóðernum býr á ... Lesa »

Rýr uppskera hjá knattspyrnuliðum bæjarins um helgina

Bæði karlalið KA og Þór voru í eldlínunni um helgina þegar liðin kepptu í 1. og Pepsi-deild karla. KA fékk Leikni í heimsókn á Akureyrarvöll og voru heilladísirnar ekki með KA mönnum þann daginn en ... Lesa »

Akureyri fer í æfingarferð til Þýskalands

Handboltapiltarnir úr Akureyri Handboltafélag halda til Þýskalands í byrjun vikunnar þar sem þeir munu dvelja í viku við æfingar og keppni. Þetta er hluti af undirbúningi liðsins fyrir komandi átök í ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Ók fram af Glerárbrúnni

Umferðaróhapp átti sér stað við brúna á Glerárgötu seint í gærkvöldi. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum sem ekið var í suðurátt eftir Hörgárbraut með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á ... Lesa »

„Are you going to Scarborough Fair“ / „Halló, Akureyri“

Dagbókarslitur úr Englandsferð „Are you going to Scarborough Fair“ - óskapleg áþján hlýtur það að vera íbúi þessa bæjar og vita að þetta er vitneskja heimsbyggðarinnar um heimahagana; lína úr ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Af sundi, útisvefni og menningarmun

Í sumar höfum við hjónin reglulega komist í tæri við hópa af amerísku ferðafólki. Fólkið er áhugasamt um að kynnast landinu í gegnum samveru við íslenska frumbyggja. Fólkið hefur að sjálfsögðu mikinn ... Lesa »

We are so unique

Hiti, sviti og þreyta eru þau orð sem lýsa best líðan minni þegar við komum loks til Taize í suðurhluta Frakklands þann 22.júlí síðastliðinn. Taize er lítið þorp sem hverfist um klausturreglu sem ... Lesa »

Fyrsti hestur á Súlur í hundrað ár!

Glæsileg ferð var farin á eitt fegursta fjall Tröllaskagans fyrir skemmstu, drottninguna Súlur. Þar tóku um 45 manns áskorun Icelandair hótelsins á Akureyri, dubbuðu sig upp og gengu alla leið á ... Lesa »

Sigfús Fossdal setti íslandsmet á Evrópumóti

Akureyringurinn Sigfús Fossdal keppti í dag á Evrópumeistaramóti í bekkpressu sem fram fór í Bratislava. Sigfús var eini fulltrúi Íslands á mótinu en hann keppir nú fyrir kraftlyftingafélagið Víking á ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að nokkur óánægja hafi skapast meðal foreldra og barna sem lögðu leið sín í miðbæ Akureyrar um helgina til að verða vitni að „karamelluregni“. Engin flugvél dreifði karamellunum eins og ... Lesa »

Villisveppapizza

Nú eru villisveppirnir komnir í norðlenska skóga og tilvalið að nýta þetta magnaða hráefni meðan færi gefst. 7 gr þurrger 1 msk hrásykur 2 dl volgt vatn 1 msk ólífuolía 300 gr hveiti 1 ... Lesa »

Skoða meira