Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og flugumferðarstjóri, ætlar að taka þriðja sætið á lista flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Þetta staðfesti hann á facebook síðu sinni í kvöld. Njáll Trausti hafði ekkert gefið upp um áform sín eftir prófkjörið þann 8. febrúar.
„Ég hef ákveðið að taka þriðja sætið á listanum. Þegar úrslit prófkjörsins eru skoðuð þá fékk ég góða kosningu í 1.sæti listans eða 42% atkvæða á meðan mótframbjóðandi minn fékk 49%. Þó það hafi ekki dugað til að leiða listann þá tel ég mig eiga góðan stuðning meðal sjálfstæðismanna sem treysta mér til góðra verka á komandi kjörtímabili. Með það í huga legg ég af stað í þessa vegferð.“ Segir Njáll Trausti í samtali við akv.is
Njáll Trausti att kappi við Gunnar Gíslason fræðslustjóra um 1. sætið en þurfti að lúta í lægra haldi. Félagið skiptist nánast í tvo hópa í prófkjörinu. Sá orðrómur var afar þrálátur í prófkjörsbaráttunni að Kristján Þór Júlíusson og hans stuðningsmenn hafi lagst á árarnar með Gunnari og haft sigur.
Margir hafa stutt ákvörðun Njáls Trausta í svörum við stöðuuppfærslu hans og óskað honum góðs gengis í kosningabaráttunni. Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi A-listans og viðskiptafélagi Njáls er hins vegar á annarri skoðun, ef marka má svar hans og telur hann Njál vera að kyssa vöndinn.
Tengdar fréttir
Prófkjör Sjálfstæðismanna í dag
Gunnar Gíslason í 1. sæti eftir fyrstu tölur
Gunnar Gíslason sigraði, Eva Hrund í 2. sætinu
Að loknu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
-SA
























