Verstu spár um að erfitt gæti reynt að minnka umhverfisáhrif spellvirkjanna á Hverfjalli hafa ekki gengið eftir því Umhverfisstofnun hefur fundið árangursríka leið til að minnka sjómengunina. Bergþóra Kristjánsdóttir, starfsmaður Umhverfisstofnunar í Mývatnssveit, fékk leyfi hjá landeigendum til að gera tilraun til að fjarlægja krotið með því að mála yfir spjöllin með gráum lit og er árangurinn undraverður eins og sést á meðfylgjandi myndum.
Frost hefur komið í veg fyrir að steinum væri snúið við eða rakað yfir málninguna og þess vegna var þessi leið farin, málað með gráu og og sandi sáldrað yfir. Stefnt er að því að í sumar verði spjöllin svo fjarlægð endanlega eftir aðstæðum.
Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Húsavík hefur enn ekki verið upplýst hvaða skemmdarverkamenn voru að verki.
Uppfært 8. apríl kl. 10:52:
Að gefnu tilefni vill Bergþóra Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun í Mývatnssveit, taka fram að ekki var aðeins málað yfir máluðu steinana heldur fólst „viðgerðin“ ekki síður í því að raka sand yfir skemmdirnar. Telur hún það hafa skipt meira máli en málningarvinnan. Auk þess má þess geta að Umhverfisstofnun notaði aðeins 10 lítra af málningu við umbæturnar.

