Engin kona en 14 karlar flytja erindi á heimspekimálþingi sem fram fer í Háskólanum á Akureyri á morgun. Yfirskrift málþingsins er: Hvað er siðferði? Kurr hefur skapast meðal kennara Háskólans á Akureyri vegna málsins og í pósti sem Dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor og deildarformaður framhaldsnámsdeildar HA sendir starfsmönnum bendir hún á að rannsóknir sýni að konur líti öðrum augum á siðferði en karlar. Þess vegna sé sérlega óheppilegt að engin kvenrödd heyrist. „Ef til vill er þetta einhver karlaklúbbur? Svolítið sorglegt að sjá þetta svona á 21. öldinni.“
Sigurður Kristinsson, deildarforseti hug- og félagsvísindadeildar og einn skipuleggjandi málþingsins segist „fullkomlega sammála því að þetta sé ekki í lagi“. Hann segir að hinn sorglegi kynjahalli í dagskránni endurspegli þó ekki mat skipuleggjenda á því hverjir hafi eitthvað til málanna að leggja. Óheppilegt sé að þær konur sem voru á efnisskránni hafi dregið erindi sín til baka. „Sem vekur þá spurningu hvort í slíkum tilvikum eigi að hætta við eða nýta sem tækifæri til umræðu um kynjahalla og jafnréttismál. Það, að þessi staða kom upp segir okkur örugglega eitthvað um kynjahlutföll og e.t.v. áherslur innan heimspekinnar, sem full ástæða er til að ræða.“
Þingið er til heiðurs Mikael M. Karlssyni, fyrrverandi forseta félagsvísinda- og lagadeildar HA.


