Skíðafélag Akureyrar heldur 38. Andrésar andar leikana í skíðaíþróttum í Hlíðarfjalli dagana 24.- 27. apríl 2013.
Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með allt að 800 keppendum á aldrinum 6-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að u.þ.b. 2500 manns sæki leikana. „Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og á sú grein án efa eftir að eflast og stækka innan leikanna,“ segir í fréttatilkynningu.
Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.
Aðstæður í Hlíðarfjalli eru nú með allra besta móti og búast mótshaldarar við góðri þátttöku og miklu fjöri á leikunum í ár. Nú þegar hafa rúmlega 700 börn verið skráð frá 19 félögum á Íslandi, en auk þess munu þrír einstaklingar frá Bandaríkjunum keppa í skíðagöngu á leikunum. Stefnir í að fjöldi þátttakenda í snjóbrettagreinum muni tvöfaldast á milli ára.
Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda um götur Akureyrar að kvöldi síðasta vetrardags. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í þrautabrautir. Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar eru í lok hvers keppnisdags þar sem í ár verður m.a. frumflutt nýtt lag Andrésar leikanna sem er samið og flutt af Hvanndalsbræðrum.


