Nýjasta leikverk Akureyringsins Kristjáns Ingimarssonar, BLAM!, hefur heldur betur slegið í gegn, ekki bara á heimsvísu heldur einnig á Íslandi. Leikritið var valið sýning ársins í Danmörku og hefur verið sýnd í Borgarleikhúsinu undanfarið. Sýnt var á Akureyri í gærkvöld en seinni sýningin verður í Hofi í kvöld. Í íslenskum dagblöðum síðustu daga hefur rignt inn dómum leiklistargagnrýnenda þar sem BLAM! Fær fullt hús, fimm stjörnur af fimm mögulegum sem er í samræmi við erlendar umsagnir.
Leikritið fjallar um skrifstofumenn á ystu nöf og er látbragð, gamanleikur, fimleikar, trúðleikur, dans og leiklist í senn. Verkið er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem eldhugar endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik. Tónlistin er áberandi og húmorinn aldrei langt undan.
Langaði að afhelga leikhúsið
Kristján Ingimarsson er ekki bara höfundur heldur listrænn stjórnandi Neander leikhópsins sem stendur að verkinu og hefur þróað sitt eigið líkamstungumál. Akureyri vikublað náði tali af Kristjáni og spurði hvað hann væri að fara með BLAM!
„Það er líklega sami uppreisnarhugurinn í mér og svo oft áður. Brjóta munstrið, sleppa taumnum og gera allar drauma og langanir að veruleika sama hversu klikkað það kann að vera. Einnig langar mig aðeins að afhelga leikhúsið og leika mér með Hollywood þemað sem slíkt. BLAM! er tvímælalaust óður til spennu og hasarmyndanna en á sama tíma kanski smá áminning um hversu grámyglulegur hversdagsleikinn getur verið ef við sleppum okkur ekki annað slagið.“
Hverju á leikhúsgesturinn helst von?
„Það er von mín að mér takist að koma áhorfendum ærlega á óvart. Ég held að flestir Akureyringar eigi eftir að sitja stjarfir í sætunum, skellihlæjandi, þurkandi af sér svitasletturnar sem koma fjúkandi af sviðinu. Við fjórir karlarnir ætlum allavega að gera okkar besta.“
Ísland fyrsta stoppið í löngu ferðalagi
Hver hefur hróður sýningarinnar verið fram að þessu?
„Við höfum fengið frábærar viðtökur bæði í Kaupmannahöfn og í Reykjavík og unnum til Raumert verðlaunanna í Danmörku þannig að ég er vægast sagt mjög montinn af þessu. Ísland er fyrsta stoppið á löngu leikferðalagi. Við komum til með að leika rúmlega 100 sýningar í 2013 víðsvegar í Evrópu, þar á meðal 20 sýningar í Peacock leikhúsinu í London í haust. Glynis Henderson Production í London er samstarfsaðili okkar og vinna hörðum höndum að því að senda BLAM um heiminn á næstu árum.“
Áttu von á að það verði öðruvísi að sýna fyrir norðan en sunnan?
„Ég held að munurinn á því að sýna í Reykjavík og á Akureyri sé sá að á Akureyri á ég eftir að kannast við marga hlátursrokuna. Það er alltaf frábært að koma heim,“ segir Kristján Ingimarsson. Sem sumir kalla snilling.


