Getur ekki orðið ráðherra á sama tíma og hann gegnir störfum 2. varaformanns – tillaga sögð komin frá Eyjamönnum
Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðismanna í NA-kjördæmi, getur ekki bæði starfað sem ráðherra að því gefnu að Sjálfstæðisflokkur skipi næstu ríkisstjórn og setið sem annar varaformaður flokksins. Hann sigraði í kosningu um annan varaformann eftir öflugt mótframboð frá Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði en á landsfundinum var skipulagsreglum breytt þannig að 2. varaformaður var festur í sessi sem fulltrúi innra starfs flokksins og getur þá ekki um leið verið ráðherra.
„Ef þeim einstaklingi sem gegnir starfi 2. varaformanns verður falið að gegna starfi ráðherra þá mun öðrum einstaklingi falin verkefni 2. varaformanns. Ég hef alltaf verið fylgjandi því að dreifa vandasömum verkefnum á sem flestar herðar,“ segir Kristján Þór.
Óánægja er með breytinguna meðal sjálfstæðismanna í NA-kjördæmi. Stefán Friðrik Stefánsson, sem gegnt hefur ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn metur það sem svo að breytingunni sé beint gegn Kristjáni. „Ef 2. varaformaður tekur að sér ráðherraembætti þarf hann að hætta í embættinu á flokksráðsfundi, sem yrði boðaður samhliða vali ráðherra, til að samþykkja ráðherraval. Það var tekist á um þetta á fundinum, fram kom breytingatillaga sem var naumlega samþykkt,“ segir Stefán Friðrik.
„Ég var á móti tillögunni, enda finnst mér mjög sérstakt og óeðlilegt að fulltrúi í forystu flokks geti ekki gegnt ráðherraembætti um leið og það gefur undarleg skilaboð. Ég hef enga trú á að hins samþykkta breyting sé komin til að vera. Þessari tillögu sem Eyjamenn töluðu helst fyrir og fengu naumlega samþykkta var klárlega beint gegn Kristjáni og mun ekki full samstaða um hana.“
Kristján þó gerir lítið úr málinu og segir að samstaða, vilji og kraftur til góðra verka hjá þeim mikla fjölda einstaklinga sem sótti landsfundinn ásamt miklum og öflugum stuðningi við forystusveit Sjálfstæðisflokksins sé sér efst í huga.