Karlar mæta frekar fordómum

Karlar mæta frekar fordómum

Kynskiptur vinnumarkaður er ein helsta ástæða kynbundins launamunar og ný kjarakönnun BHM hefur sýnt að því fleiri konur sem eru í hverri stétt því lægri eru launin. „Ef takast á að uppræta launamisréttið þarf markvisst að vinna gegn kynbundnu náms- og starfsvali og kynskiptum vinnumarkaði,“ segir í auglýsingu um hádegisfund sem Jafnréttisstofa hefur boðað til á Kvennafrídaginn, fimmtudaginn 24. október á Hótel KEA. Fundurinn verður helgaður kynbundnu náms- og starfsvali og kynskiptum vinnumarkaði.

Þrátt fyrir gríðarlegar breytingar á Íslenskum vinnumakaði síðustu áratugi eru úreltar staðalmyndir kynjanna, þegar kemur að náms- og starfvali enn mjög rótgrónar. Sem dæmi má nefna að árið 2011 voru konur 95% starfsmanna á leikskólum en karlar 91% starfsmanna við fiskveiðar. Konur hafa þó frekar en karlar brotist yfir landamærin og virðast hafa meira frelsi til að fara ótroðnar slóðir. Karlar mæta hins vegar oft fordómum ef þeir hætta sér inn í hefðbundnar kvennagreinar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jafnréttisstofu

Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnum launamun er gert ráð fyrir að unnin verði framkvæmdaáætlun, um langtímaaðgerðir til úrbóta, þar sem sérstök áhersla verður lögð á að fjölga körlum í kvennastéttum og konum í karlastéttum. „Mikilvægt er að byrja sem fyrst að vinna með kynbundin viðhorf barna og unglinga til starfa og þar gegnir skólinn mikilvægu hlutverki,“ segir í tilkynningu frá Jafnréttisstofu.

Fundurinn stendur frá kl. 12-13:30 og verða flutt sex stutt erindi sem snúa að hefðum í náms og starfsvali.

12:00 - Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu - Rjúfum hefðirnar, förum nýjar leiðir
12:15 - Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA - Stúlkur og tækninám
12:30 - Lena Rut Birgisdóttir, námsráðgjafi í MA - Karlar í kvennastörfum
12:45 - Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar - Hræðast karlar gamalt fólk?
13:00 - Berglind Judith Jónasdóttir, húsa- og húsgagnasmiður og Guðrún Björg Eyjólfsdóttir, húsgagnasmiður - Mublur: Stelpur í smíðum
13:15 - Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar - „Hvað er svona merkilegt við það…“ Konur í hefðbundnum karlastörfum

-SBS

Mikil gróska hjá ungskáldum

Í dag fór fram verðlaunaafhending í samkeppni meðal ungskálda á Akureyri um besta ritaða textann. Það eru Akureyrarstofa, Amtsbókasafnið, MA, VMA og Ungmennahúsið með stuðningi Eyþings sem stóðu fyrir ... Lesa »

Lögreglan varar við smáskilaboðum

Lögreglan á Akureyri sendi frá sér tilkynningu í dag um að fólk sé að fá smáskilaboð frá erlendum númerum þar sem hinar ýmsu óskir koma fram en aðallega er beðið um að hringt verði til baka strax. ... Lesa »

Opnar vinnustofur í Flóru á laugardag

Vegna síendurtekinna fyrirspurna opna listamenn og hönnuðir í Flóru vinnustofur sínar laugardaginn 30. nóvember kl. 12-16. Fólki gefst þá loksins tækifæri til að ganga um neðri hæðir hússins í ... Lesa »

Aðstoð fyrir fátæka hafin

Eins og fram hefur komið verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Aðstandendur vilja kom því á ... Lesa »

Björn Snæbjörnsson er formaður Starfsgreinasambandsins

Auglýsing SA sé ósmekkleg og hrokafull

Á fundi í samninganefnd Einingar-Iðju sem haldinn var í gær, mánudaginn 25. nóvember, var eftirfarandi ályktun vegna auglýsingaherferðar Samtaka atvinnulífsins samþykkt ... Lesa »

Meðalvigt dilka hjá Norðlenska aldrei verið hærri

Í haust var um 79.000 fjár slátrað á sláturhúsi Norðlenska á Húsavík en fleira fé hefur ekki verið slátrað þar síðan 2007 og meðalvigt dilka hefur aldrei verið hærri þar á bæ. Frá þessu segir á vef ... Lesa »

Söng- og sögukvöld í Húna

Í kvöld, mánudagskvölið 25. nóvember kl. 20, verður haldið sérstakt söng- og sögukvöld um borð í Húna II við Torfunefsbryggju. Kristján Pétur Sigurðsson tónlistamaður og lífskúnstner skemmtir en ... Lesa »

Ljósaganga 16 daga átaks gegn ofbeldi

Í dag, mánudaginn 25. nóvember, kl. 17:00 verður farin ljósaganga frá Akureyrarkirkju að Ráðhústorgi. Gangan er í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi og eru foreldrar hvattir til að mæta ásamt börnum ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Engan hrísvönd þessi jól

Jólin nálgast og grýla er ekki dauð líkt og fimm ára sonur minn heldur staðfastlega fram í fyrirvaraleysi æsku sinnar. Við fullorðna fólkið höfum nefnilega mörg hver haldið henni á lífi með óþarfa ... Lesa »

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi er nú haldið í 23 sinn. Átakið stendur í 16 daga frá mánudeginum 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og til 10. desember en það ... Lesa »

“Heima er hundurinn frakkastur”

Í svargrein Sigurðar Guðmundssonar bissnessmanns og bæjarfulltrúa á Akureyri sem birtist í síðasta tbl. Í Akureyri vikublaði er hann á einhverjum villigötum, því grein mín var aðallega um spillingu ... Lesa »

Samræmd könnunarpróf

Árið 1929 hófu samræmdu prófin göngu sína á Íslandi og hafa verið í gangi síðan. Upphaflega var einungis könnuð geta nemenda í 10.bekk og þá ekki í 4.- og 7.bekk eins og hefur verið gert frá árinu ... Lesa »

Drengurinn sem aldrei var til, súrrealísk hinseginsaga

Sjón hefur nýjustu skáldsögu sína, Mánastein, að öllum líkindum eins groddalega og hægt er. Í það minnsta fyrir verk sem hlýtur að kallast ljóðrænt, sem kastar þannig böndum á lesandann og dáleiðir. ... Lesa »

Ylfa selur jólakort

Lionsklúbburinn Ylfa Akureyri var stofnaður árið 2011 og er einn fjögurra Lionsklúbba á Akureyri. Í honum starfa 24 konur. Klúbburinn hefur nú hafið sölu á jólakortum til styrktar líknarsjóði ... Lesa »

Hornsílaveiðar í Eyjafjarðará

Fyrir nokkrum árum var ég staddur í ljóðagöngu í Kristnesskógi og spurður hvort mér hefði ekki fundist yndislegt að alast upp við Kristnes. Ég gat ekki svarað spurningunni enda hafði ég ekki leitt ... Lesa »

Heimsþekkt sálmaskáld heimsækir Akureyri 1862

Akureyringar minntust þess sumarið 2012 að 150 ár voru liðin frá því að bærinn fékk kaupstaðarréttindi. Sjálfsagt hafa Akureyringar fagnað kaupstaðarréttindunum þann 29. ágúst árið 1862 þó lítið hafi ... Lesa »

Sigurvegarar Grenndargralsins 2013

Bergvin Leif Garðarsson og Patrik Orri Jóhannsson úr 9. bekk í Giljaskóla eru sigurvegarar í Leitinni að Grenndargralinu árið 2013. Leitinni lauk föstudaginn 15. nóvember. Dagurinn hófst á því að ... Lesa »

Hluti kennara í mikilli hættu

Á sama tíma og fjöldi manns byggir afkomu sína á að leigja út rödd sína eru hávaðamörk við vinnu víða að engu höfð. Það getur orðið til þess að fólk brýnir rödd sína þannig að skaði hlýst af, segir ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá bankar sem taka of háa þóknun fyrir úttektir í öðrum bönkum. Svo mælir bæjarbúi á Akureyri. „Ég fór í hraðbanka, sem er merktur Arion banka en er sjálfur í viðskiptum við Landsbankann, og tók ... Lesa »

Hreyfing sem eflir konur

Amelia Earhart flugkona var Zontakona. Stuttu eftir hvarf hennar 1937 var stofnaður sjóður innan Zontahreyfingarinnar í Bandaríkjunum til að styrkja konur til doktorsnáms í greinum sem tengdust ... Lesa »

L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa

L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa ef kosið yrði í sveitarstjórnarkosningum núna. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði og birt er í Morgunblaðinu í dag. Listinn ... Lesa »

Bókin um Helenu

Bók Óskars Þórs Halldórssonar blaðamanns um Helenu Eyjólfsdóttur söngkonu, Gullin ský, er bók sem verður öllum þeim sem kynnst hafa Helenu persónulega eða eiga minningar við tónlist hennar ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Lækkum iðgjöld í lífeyrissjóð – bætum kjör án kostnaðarhækkana og verðbólgu

Frá Hruni hefur verulegur fjöldi fólks glímt við versnandi kjör, lægri laun og atvinnuleysi en umfram allt hefur greiðslubyrði af húsnæði - bæði lán og leiga - rokið upp fyrir velsæmismörkin. Hækkun ... Lesa »

Ekki prófkjör hjá Samfylkingu

Á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gær, 21. nóvember, var samþykkt að kosin yrði uppstillingarnefnd til að velja frambjóðendur á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir ... Lesa »

STAFRÓFIÐ eftir Hlyn Hallsson

Út er komið hjá Flóru og forlagi höfundanna bókverkið „Stafrófið - Das Alphabet (IS) - The Alphabet (IS)” eftir Hlyn Hallsson. Hlynur hefur áður gefið út nokkrar bækur og bókverk og þar má nefna ... Lesa »

Skoða meira